Innlent

Bílvelta á Snæfellsnesvegi

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
vísir/anton
Bíll valt á Snæfellsnesvegi, rétt vestan við Álftá, laust fyrir klukkan sex í dag.

Ökumaðurinn, sem var einn í bílnum, er töluvert slasaður að sögn lögreglunnar í Borgarnesi. Þyrla Landhelgisgæslunnar var við æfingaflug í grennd við slysstað og flaug hún með manninn á Landspítalann í Fossvogi.

Bíllinn er óökufær og verið er að draga hann af vettvangi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×