Formúla 1

Bílskúrinn: Blönduð keppni í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Mercedes fagnar í Brasilíu.
Mercedes fagnar í Brasilíu. Vísir/Getty
Keppnin í Brasilíu um síðustu helgi var með þeim rólegri, einungis einn ökumaður komst ekki í endamark, Carlos Sainz á Toro Rosso kláraði ekki fyrsta hringinn.

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark eftir að hafa leitt frá upphafi til enda, fyrir utan þá hringi sem hann tók þjónustuhlé.

Margt athyglisvert kom þó fram um helgina uppgjör þess helsta er í Bílskúrnum, hér á Vísi.

Er Toto Wolff að skemma fyrir áhorfendum?Vísir/Getty
Er Mercedes með leiðindi?

Mercedes liðið bannaði Lewis Hamilton að skipta um keppnisáætlun í miðri keppni. Rosberg var á undan en Hamilton virtist hraðari. Mercedes vildi halda báðum ökumönnum á sömu áætlun.

Hamilton ítrekaði stöðugt yfir keppnina að það væri erfitt að taka fram úr á Interlagos brautinni. Hann kvartaði yfir því sama í Mexíkó. Áhugaverð tilviljun ef tilviljun getur kallast er að í bæði skipti var Hamilton að elta Rosberg og reyna að ná forystunni. Er Hamilton að búa sér til afsökun? Eða er í alvörunni erfitt að elta Mercedes bílinn í návígi?

Hamilton er óvanur því að vera fyrir aftan liðsfélaga sinn. Mercedes vildi þrátt fyrir allt ekki leyfa Hamilton að taka áhættuna og skipta um dekk á öðrum tíma en Rosberg. Mercedes rændi þar með áhorfendur hugsanlega af baráttu sinna manna.

Mercedes segist skilja að áhorfendur vilji hreina og beina baráttu en það sé ekki liðinu, styrktaraðilum þess og fjárfestum fyrir bestu.

Vonandi skiptir Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes um skoðun fyrir Abú Dabí.

Pastor Maldonado kominn fram úr Marcus Ericsson eftir að hafa keyrt á hann.Vísir/getty
Var Maldonado um að kenna?

Pastor “Crahstor” Maldonado á Lotus ók utan í Marcus Ericsson á Sauber í keppninni á sunnudag. Báðir ökumenn gátu haldið áfram en Ericsson tapaði sæti sínu í keppninni.

Maldonado er einn umdeildasti ökumaðurinn í Formúlu 1 um þessar mundir. Hann er þekktur fyrir að aka utan í aðra ökumenn og oftar en ekki er það hann sök. Reyndin er sú að honum var um að kenna í þessu tilfelli.

Hvernig getur ökumaður sem ekki hefur lokið nema 10 keppnum af 18 á tímabilinu haldið sæti sínu hjá liði sem hefur komið bíl á verðlaunapall í ár? Peningar eru lausnin, Maldonado er með svo öfluga bakhjarla að Lotus liðið hefur einfaldlega ekki efni á að losa sig við hann.

Atvikið um helgina var með þeim saklausari sem Maldonado hefur valdið í gegnum tíðina. Það bjó samt til ástæðu til að tala um hann og hvort hann eigi sæti sitt í Formúlu 1 skilið yfir höfuð.

Það má ekki gleyma að Maldonado vann spænska kappaksturinn 2012. Það er þó vert að bæta við að sú keppni var aðeins ein af fimm það árið sem hann náði stigasæti, þá voru 20 keppnir haldnar. Spænska keppnin var slembilukka að mati blaðamanns og Maldonado er skrambi heppinn að vera áfram í Formúlu 1.

Max Verstappen byrjar einn af flottari fram úr ökstrum helgarinnar, hér tekur hann fram úr Sergio Perez.Vísir/getty
Maður keppninnar

Max Vertsappen hjá Toro Rosso heldur áfram að heilla, hann átti ekki í neinum vandræðum með að taka fram úr á brautinni í Brasilíu. Hann sýndi ótrúlega takta og fær þess vegna heiðurinn að því að vera maður keppninnar.

Verstappen endaði í níunda sæti eftir að hafa ræst 10. Það segir þó ekki allt enda tók hann fram úr töluvert fleirum en einum.

Max Verstappen er að verða eftirsóttasti ökumaðurinn í Formúlu 1, án þess að vera fært að sema við nýtt lið. Hann er samningsbundin Toro Rosso út næsta ár. Hann er líka alinn upp í Red Bull ökumannsakademíunni, kannski hefur Red Bull einhver forkaupsrétt á honum.

Ferrari og Mercedes eru sögð á eftir honum, hann er 18 ára og líklegur meistari að mati margra.

Nico Rosberg geislar af sjálfstrausti.Vísir/Getty
Er Rosberg að ræsa rosalegu 2016?

Rosberg er fullur sjálfstraust, hann hefur ekki stigið feilspor síðan hann tapaði forystunni í Texas og um leið möguleikanum á að verða heimsmeistari ökumanna.

Hann hefur aldrei náð fleiri ráspólum í röð á ferlinum, fimm í röð komnir núna. Ætli ökumaður á bíl númer sex nái í ráspól númer sex í röð í Abú Dabí?

Hugsanlega er honum bara létt að heimsmeistaratitillinn er ekki lengur í boði, kannski keyrir hann betur þegar pressan er minni. Kannski er þetta bara tilviljun.

Lewis Hamitlon hefur verið að hafa gaman og njóta lífsins undanfarið og klessa Paggani Zonda bíl sinn í Mónakó.Vísir/Getty
Er Hamilton hættur í ár?

Hvort árangur Rosberg undanfarið er tilviljun eða ekki, veit ég ekki. Kannski er Hamilton bara sama, hann er orðinn heimsmeistari, liðið er orðið heimsmeistari og hann er með flesta ráspóla á tímabilinu.

Hamilton frestaði komu sinni til Brasilíu vegna þess að hann lenti í árekstri við þrjá kyrrstæða bíla í Mónakó og var ennþá eitthvað slappur eftir það þegar hann átti að fljúga.

Hamilton sagði að hann hefði verið þreyttur eftir mikið húllumhæ undanfarnar vikur, síðan hann varð heimsmeistari. Toto Wolff segir að hann neyti ekki áfengis svo ekki hefur verið um ölvunarakstur að ræða.

Hamilton sagði sjálfur eftir tímatökuna á laugardag að verkefni hans þetta árið væri búið, hann væri heimsmeistari. Hann sagði þó reyndar eftir keppnina að hann myndi auðvitað vilja vinna allt sem hægt er að vinna og sérstaklega ehfði hann viljað vinna í Brasilíu, þar sem hann hefur aldrei unnið keppni.


Tengdar fréttir

Nico Rosberg náði fimmta ráspólnum í röð

Nico Rosberg á Mercedes verður á ráspól í brasilíska kappakstrinum á morgun. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton varð annar í tímatökunni og Sebastian Vettel á Ferari varð þriðji.

Nico Rosberg vann í Brasilíu

Nico Rosberg á Mercedes kom fyrstur í mark í brasilíska kappakstrinum. Lewis Hamilton á Mercedes varð annar og Sebastian Vettel á Ferrari þriðji.

Felipe Massa dæmdur úr leik á heimavelli

Felipe Massa hefur verið dæmdur úr brasilíska kappakstrinum sem fram fór í dag. Dekk á bíl heimamannsins var heitara en heimilt er á ráslínu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×