Formúla 1

Bílskúrinn: Baslið í Brasilíu

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton fagnar með liðinu sínu.
Lewis Hamilton fagnar með liðinu sínu. Vísir/Getty
Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í maraþon keppni í Brasilíu. Kappaksturinn stóð yfir í rúmar þrjár klukkustundir. Miklar rigningar töfðu keppnina talsvert.

Max Verstappen tók aðra ökumenn í kennslustund hvernig á að aka í rigningu, Hamilton minnkaði forskot Rosberg, Rosberg vann ákveðinn varnarsigur, Sauber náði í stig og heimamaðurinn Felipe Massa var einn þeirra sem reyndi á styrk varnarveggjanna á beina kafla brautarinnar, í sínum síðasta Formúlu 1 kappakstri í Brasilíu.

Max Verstappen stillir Kimi Raikkonen upp til að hirða svo af honum sætið.Vísir/Getty
Kennslustund Max Verstappen

Um leið og létti tímabundið á rigningunni tóku Red Bull menn þá ákvörðun að fara yfir á milli-regndekk. Verstappen komst um tíma í annað sæti í keppninni. Rigningin jókst svo aftur og Verstappen var í vandræðum. Hann var að tapa miklum tíma og var í hættu að missa bílinn út af brautinni.

Inn á þjónustusvæðið kom hann og fékk full-regndekk undir. Hann kom út á brautina í 14. sæti þegar hann var kominn með glæný full-regndekk undir og endaði keppnina, rétt um 14 hringjum seinna í þriðja sæti.

Þvílíkur akstur, ökumaður dagsins var að sjálfsögðu Verstappen. Hann hefur verið ausinn hrósi eftir þessa frammistöðu. Það má ekki gleyma að Verstappen er ný orðinn 19 ára. Hann var eins og á teinum á meðan aðrir voru á skautasvelli. Frammistaða hans minnir á goðsagnirnar Michael Schumacher og Ayrton Senna.

Lewis Hamilton minnkaði forskot Nico Rosberg í heimseistarakeppni ökumanna niður í 12 stig, nú þegar ein keppni er eftir.Vísir/Getty
Hamilton minnkar bilið

Með því að vinna í Brasilíu í fyrsta skipti á ferlinum, minnkaði Hamilton forksot Nico Rosberg niður í 12 stig í heimsmeistarakeppni ökumanna. Einvígið í eyðimörkinni er í aðsigi eftir tæpar tvær vikur, þegar tímabilið klárast í 21. keppninni á árinu, í Abú Dabí.

Spennan verður gríðarleg. Hamilton notaði tækifærið í viðtali eftir keppnina í Brasilíu til að lýsa henni sem einni auðveldustu sem hann hefði unnið. Þótt einungis sé miðað við aðstæður verður sú fullyrðing stórlega dregin í efa. Hins vegar var klárt að hann var að skjóta fyrsta skotinu í sálfræðistríðinu sem mun standa yfir fram yfir keppnina í Abú Dabí.

Til að Rosberg verði heimsmeistari dugar honum að verða þriðji ef Hamilton vinnur í Abú Dabí. Ef Hamilton verður annar þá dugar Rosberg sjötta sætið. Verði Hamilton þriðji dugar Rosberg að verða áttundi og verði Hamilton fjórði dugar Rosberg eitt stig í tíunda sæti.

Endi Hamilton fimmti eða neðar þá verður Rosberg heimsmeistari sama hvað gerist.

Nico Rosberg er líklega farinn að renna hýru auga að heimsmeistaratitlinum.Vísir/Getty
Rosberg var hinn rólegasti

Það er ekkert launungarmál að Hamilton var eflaust mjög glaður þegar fór að rigna í Brasilíu. Á hinn bóginn hefur Rosberg hugsað veðriðnu þegjandi þörfina enda ekki sterkasti ökumaðurinn í rigningunni. Þetta sást til að mynda vel í breska kappakstrinum í ár, þegar fór að rigna virkaði Rosberg bæði óöruggur og hreinlega hræddur.

Hann var því líklega afar feginn að skaðinn varð ekki meiri. Hann tapaði ekki nema sjö stigum í baráttunni við Hamilton. Rosberg hefur aldrei verið nær því að verða meistari og nú er bara að fylgjast grant með. Ætli hann hafi taugarnar í að verða meistari? Keke Rosberg, föður hans hafði það, spurning hvort Nico erfði taugar föður síns.

Felipe Massa gegnur upp aðreinina að þjónustusvæðinu eftir að keppninni hans lauk með árekstri við varnarvegg. Augnablik sem verður lengi haft í minnum.Vísir/Getty
Felipe Massa

Augnablikið sem Felipe Massa nam staðar á brautinni eftir að hafa lent á varnarvegg var svakalegt. Heimamaðurinn að ljúka síðustu keppninni sinni í Formúlu 1 á heimavelli, með þessum hætti. Agalegt, en ekki er neitt svo með öllu illt að ekki boði neitt gott.

Massa fékk heiðursvörð þegar hann gekk hægt og rólega sveipaður brasilíska fánanum upp aðreinina að þjónustusvæðinu. Þjónustulið Mercedes, Ferrari og Williams stóðu heiðursvörð fyrir þennan vinsæla ökumann.

Það hefði líklega ekki verið þurrt auga í stúkunni, þótt þurrt hefði verið í veðri, þegar Massa faðmaði konuna sína og barn, grátandi og með þjónustuliðin að klappa fyrir honum.

Massa verður sárt saknað, þvílíkur ökumaður sem hann er og hefur verið lengi. Blaðamaður vill segja takk Felipe Massa, með rykkorn í öðru auganu.

Felipe Nasr á Sauber í baráttunni við Jolyon Palmer á Renault.Vísir/Getty
Sauber á stigatöfluna

Stigin eru líklega um 40 milljón dollara virði, vegna þess að með þeim fór liðið upp fyrir Manor liðið í keppni bílasmiða.

Sauber liðið var það eina sem var stigalaust. Með þeim tveimur stigum sem Felipe Nasr, heimamaðurinn náði í hefur liðið því tryggt sér töluvert stærri bita af kökunni sem skipt verður upp í lok árs, um það bil 40 milljónum dollara stærri sneið. Að því gefnu að Manor komist ekki fram úr þeim í Abú Dabí.


Tengdar fréttir

Hamagangur í Brasilíu | Sjáðu uppgjörsþáttinn

Rúnar Jónsson og Kristján Einar Kristjánsson, sérfræðingar Stöðvar 2 Sport fara yfir hádramatískan brasilískan kappakstur, þar sem Lewis Hamilton hélt titlbaráttunni á lífi.

Lewis Hamilton vann í Brasilíu

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í Brasilíu. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar og Max Verstappen varð þriðji með ótrúlegum akstri á Red Bull bílnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×