Golf

Bill Haas sigraði á Humana Challenge

Haas sýndi stáltaugar á lokahringnum.
Haas sýndi stáltaugar á lokahringnum. Getty
Bill Haas sigraði á Humana Challenge í annað sinn í gærkvöldi en sigurinn er hans sjötti á PGA-mótaröðinni á ferlinum.

Gríðarleg mikil spenna einkenndi lokahringinn en þegar Haas var á 15. holu voru sex kylfingar jafnir á 21 höggi undir pari í forystunni. Á 16. holu nældi hann sér síðan í góðan fugl og skaust þar með upp fyrir restina.

Tvö pör á síðustu tveimur holunum tryggðu honum sigurinn en hann sigraði einnig á mótinu árið 2010. Þá er gaman að geta þess að faðir hans, Jay Haas, hefur einnig sigrað á sama móti en það gerði hann árið 1988.

Fimm kylfingar deildu öðru sætinu en það voru þeir Matt Kuchar, Charley Hoffman, Brendan Steele, Steve Wheatcroft og Sung Joon Park.

Fyrir sigurinn fékk Bill Haas rúmlega 130 milljónir króna sem verður að teljast ágætt kaup fyrir fjóra vel spilaða golfhringi í sólinni í Kaliforníu.

Næsta mót á PGA-mótaröðinni er Waste Management Phoenix Open en þar mun Tiger Woods hefja tímabil sitt á mótaröðinni ásamt mörgum öðrum sterkum kylfingum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×