Innlent

Bíll fór þrjár veltur á Reykjanesbraut

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slysið varð á Reykjanesbraut, nærri Sprengisandi. Mynd/ Jarek.
Slysið varð á Reykjanesbraut, nærri Sprengisandi. Mynd/ Jarek.
Ökumaður bifreiðar var fluttur á slysadeild eftir að bíll hans velti á Reykjanesbraut, við Sprengisand, og hafnaði á staur um hálftíuleytið í kvöld. Bíllinn fór þrjár veltur áður en hann staðnæmdist.

Fréttastofa Stövar 2 og Vísis hefur ekki náð tali af lækni á slysadeild og því liggur ekki fyrir á þessari stundu hversu alvarlega ökumaðurinn slasaðist. Ökumaðurinn var einn í bílnum samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×