Fótbolti

Bikarleikur Fríðu, Guggu, Mistar og Tótu sýndur beint

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fríða, Gugga og Þórunn Helga fagna þremur stigum að loknum sigurleik í sumar.
Fríða, Gugga og Þórunn Helga fagna þremur stigum að loknum sigurleik í sumar.
Íslendingaliðið Avaldsnes mætir Vålerenga á heimavelli í undanúrslitaleik norska bikarsins í knattspyrnu í dag klukkan 13 að íslenskum tíma.

Guðbjörg Gunnarsdóttir, Hólmfríður Magnúsdóttir, Mist Edvardsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir leika allar með Avaldsnes sem getur komist í úrslitaleik bikarsins í fyrsta skipti. Liðið er nýliði í efstu deild en miklu hefur verið kostað til og eru á annan tug erlendra leikmanna hjá liðinu.

Leikurinn er í beinni útsendingu á norska ríkissjónvarpinu, NRK1, sem má t.d. finna á Fjölvarpinu.

Síðari undanúrslitaleikurinn fer fram á morgun þegar Telma Hjaltalín Þrastardóttir og félagar í Stabæk mæta Lilleström. Sá leikur hefst einnig klukkan 13 og verður í beinni útsendingu á NRK1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×