Handbolti

Bikarævintýri ÍBV-b | Myndband

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aðallið og B-lið ÍBV gætu mæst í átta-liða úrslitum bikarkeppninnar.
Aðallið og B-lið ÍBV gætu mæst í átta-liða úrslitum bikarkeppninnar. Mynd/Skjáskot
B-lið ÍBV varð í gær síðasta liðið til að tryggja sér sæti í átta-liða úrslitum Coca-Cola bikarsins í handbolta í gær.

Eyjamenn unnu þá dramatískan eins marks sigur, 21-20, á Þrótti sem leikur í 1. deild. Aðallið ÍBV komst einnig áfram í vikunni og svo gæti farið að það yrði sannkallaður Eyjaslagur í átta-liða úrslitum bikarkeppninnar.

Sighvatur Jónsson hefur sett saman skemmtilegt myndband um leik ÍBV-b og Þróttar sem sjá má hér að neðan, en þar má m.a. sjá innileg fagnaðarlæti leikmanna ÍBV-b eftir að sigurinn var í höfn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×