Innlent

Biður þingmenn um að styðja þingsályktunartillögu um aukinn stuðning við flóttafólk

Nanna Elísa Jakobsdóttir skrifar
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir.
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir. Vísir/Ernir
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur sent öllum þingmönnum þingsályktunartillögu sína um mótttöku flóttafólks í tölvupósti og óskar hún eftir meðflutningi fleiri þingmanna, úr öllum flokkum.

„Í tillögunni, sem samin var í vor og dreift til þingmanna sem sitja í nefnd um endurskoðun útlendingalaga og aftur í síðustu viku, er talað um 500 manns en í ljósi þess að vandinn vex með viku hverri tel ég að það megi endurskoða þann fjölda,“ skrifar Sigríður Ingibjörg í póstinum sem Vísir hefur undir höndum. Þingmenn Samfylkingarinnar, Birgitta Jónsdóttir og Páll Valur Björnsson hafa þegar samþykkt meðflutning.

Mörg hundruð flóttamanna hafa látið lífið við að flýja örbirgð og kvalir í heimalandi sínu.nordicphotos/AFP
Hún sendir póstinn vegna þeirrar þróunar sem hefur orðið í flóttamannamálum í heiminum. „Í ljósi vaxandi umræðu um þá skelfingu sem rekur nú vaxandi fjölda fólks á flótta undan stríði og óöld sendi ég ykkur þingsáætlunartillögu mína um móttöku flóttafólks.“

Tillagan fyrrnefnda felur í sér aukinn stuðning við móttöku flóttafólks.

Hér eftir fer tillaga Sigríðar Ingibjargar:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að hefja þegar í stað undirbúning á móttöku   flóttamanna, þ.e. kvótaflóttafólki, til landsins á næstu þremur árum í samvinnu við Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna. Stefnt verði að því að 100 flóttamönnum verði boðin dvöl hér á landi árið 2015, 200 árið 2016 og 200 árið 2017. Sérstök áhersla verði lögð á móttöku flóttafólks frá Sýrlandi og flóttafólks annars staðar frá sem er í sambærilegri stöðu og viðkvæmir hópar flóttamanna sem Ísland hefur tekið á móti undanfarin ár  í samstarfi við Flóttamannahjálpina.

Vegna langvarandi stríðsástands í Sýrlandi skal jafnframt unnið að aukinni fjölskyldusameiningu Sýrlendinga, m.a. með því að heimila tímbundið veitingu dvalarleyfa til aðstandenda Sýrlendinga sem búsettir eru á Íslandi.

Þá verði samhliða unnin áætlun um móttöku kvótaflóttamanna  sem taki gildi árið 2018 þar sem tryggt verði að Ísland taki á móti flóttafólki til samræmis við íbúafjölda og efnahag landsins.“


Tengdar fréttir

Vorum án lands

Nedeljka og Sava Ostojic komu til Íslands árið 2003 sem flóttamenn eftir að hafa búið í flóttamannabúðum í Króatíu í 7 ár. Á einu ári söfnuðu þau sér fyrir útborgun í íbúð og líður vel á Ísland. Hinsvegar sakna þau sumarsins




Fleiri fréttir

Sjá meira


×