Sport

Betur verður fylgst með boltunum í NFL-deildinni

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots.
Tom Brady, leikstjórnandi New England Patriots. Vísir/Getty
Dómarar í NFL-deildinni munu fylgjast betur með að boltarnir sem notaðir eru í leikjum séu ekki of linir á næsta tímabili. Var þessi ákvörðun tekin eftir að upp komst um að New England Patriots hefði sett of lítið loft í boltana fyrir leik liðsins gegn Indianapolis Colts í úrslitaleik AFC-deildarinnar á síðasta tímabili.

Er talið að Patriots hafi hleypt lofti úr boltunum, gert að ósk Tom Brady, leikstjórnenda liðsins. Samkvæmt rannsókn sem gerð var um málið var loft tekið úr boltunum en Brady hefur lýst yfir sakleysi sínu í málinu. Var hann dæmdur í vor í fjögurra leikja bann ásamt því að liðið missti tvo valrétti í nýliðavalinu og var gert að greiða eina milljón bandaríkjadollara í sekt.

Kemur það fram á miðlum erlendis að betur verður fylgst með vigtuninni þegar boltar eru rannsakaðir ásamt því að dómarar munu af og til á meðan leik stendur rannsaka bolta að eigin vild.

Voru reglurnar á síðasta tímabili að boltarnir voru prófaðir fyrir leik og aðeins einn vigtaður en framkvæmdarstjóri Indianapolis Colts, Ryan Grigson, sagði að það væri alþekkt innan deildarinnar að boltastrákar breyttu ástandi boltanna eftir að dómararnir væru farnir.

Var þetta ekki í fyrsta skipti sem Patriots er sakað um vafasama hegðun undir stjórn Bill Belichick en árið 2007 var þjálfarinn staðinn við að hafa tekið ólöglegar myndir af handabendingum andstæðinga liðsins.

NFL

Tengdar fréttir

Líklegt að meistararnir hafi svindlað

NFL-deildin setti í gang mikla rannsókn á því hvort meistarar New England Patriots hafi svindlað í úrslitakeppninni og nú er búið að skila 243 blaðsíðna skýrslu.

Tom Brady byrjar titilvörnina í fjögurra leikja banni

Tom Brady, leikstjórnandi NFL-meistara New England Patriots, var í gær dæmdur í fjögurra leikja bann vegna vitneskju hans og þáttöku í stóra boltamálinu þegar Patriots-liðið braut reglur með því að taka loft úr keppnisboltum fyrir leik í úrslitakeppninni á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×