Betra samfélag

Fréttablaðið Aðsendar greinar 01. febrúar 2012 06:00
Jóhanna Sigurðardóttir
formaður Samfylkingarinnar
Steingrímur J. Sigfússon
formaður VG
Jóhanna Sigurðardóttir formaður Samfylkingarinnar Steingrímur J. Sigfússon formaður VG
Í dag eru rétt þrjú ár liðin frá því minnihlutastjórn Samfylkingarinnar og VG tók við völdum eftir alvarlegasta fjármálahrun í sögu lýðveldisins. Í þingkosningunum 25. apríl sama ár fengu þessir flokkar skýrt meirihlutaumboð frá kjósendum.

Verkefni okkar í þágu almennings og framtíðarheilla landsmanna virtust í fyrstu nær óyfirstíganleg og sá möguleiki var raunverulega fyrir hendi að þjóðin yrði gjaldþrota ef ekki yrði hið bráðasta og af einurð tekist á við vandann. Sem gefur að skilja reyndi þetta á bein tveggja ungra flokka, Samfylkingarinnar og VG, sem báðir voru stofnaðir fyrir 12 til 13 árum. Varla var heldur við því að búast að margir vörslumenn sérhagsmuna í landinu yrðu sérlega hrifnir þegar þeir lásu samstarfsyfirlýsingu fyrstu hreinræktuðu ríkisstjórnar jafnaðar-, umhverfis- og vinstristefnu: Norrænt velferðarsamfélag skyldi vera leiðarljós, sjálfbær þróun, félagslegt réttlæti og jöfnuður og opin og skilvirk stjórnsýsla samfara lýðræðisumbótum. Ýmislegt hefur gengið á og ekki hafa allir samherjar okkar sætt sig við framkvæmd einstakra stefnumála. En mótlætið hefur hert okkur og þroskað og þegar hér er komið sögu efumst við ekki um að takast muni að ljúka stórum og mikilvægum viðfangsefnum á þeim tíma sem eftir lifir kjörtímabilsins. Við erum bjartsýn og í sóknarhug enda betri tíð í vændum.


Ástæða til bjartsýni
Endurreisn bankakerfisins og skuldaúrvinnsla fyrirtækjanna skapar svigrúm sem mun hleypa auknum krafti í atvinnulífið. Hagvöxtur reynist meiri en spáð var, líklega 3,5 til 4 prósent á síðasta ári. Hann gæti hæglega orðið 2,5 til 3 prósent á þessu ári en til samanburðar er því spáð að hann verði 1,5 prósent að jafnaði innan Evrópusambandsins. Ytri skilyrði geta vitanlega dregið úr vilja til fjárfestinga vegna þrálátra hremminga alþjóða fjármálakerfisins. En á móti slíku vegur að mörgu leyti ágætt ástand innanlands. Benda má á vaxandi loðnukvóta sem er góður búhnykkur og skilar milljörðum inn í hagkerfi okkar.

Miklar orkuframkvæmdir eru hafnar eða í þann mund að hefjast, við Búðarháls, á norðaustursvæðinu og á suðvesturhorninu. Framvindan ræðst af þeim samningaviðræðum sem þegar eru hafnar við fjölbreyttan hóp fjárfesta sem sýnt hafa landinu áhuga. Á annan tug fjárfestingarsamninga er til skoðunar eða hafa verið undirritaðir og koma brátt til framkvæmda.
Á næstunni verða stigin tvö mikilvæg skref í afnámi gjaldeyrishaftanna. Annars vegar er um að ræða annað gjaldeyrisútboð Seðlabanka Íslands en hins vegar er um að ræða fyrsta fjárfestingarútboðið sem ætlað er að laða erlendar fjárfestingar til landsins samfara flutningi á aflandskrónum inn í landið. Matsfyrirtækið Fitch gat þess í ársbyrjun að takist útboðin vel komi til greina að lyfta Íslandi í fjárfestingarflokk. Fari svo væri Ísland á nýjan leik metið í fjárfestingarflokki af öllum stóru matsfyrirtækjunum og eitt þeirra breytti nýlega horfum Íslands úr neikvæðum í stöðugar.


Lýðræði og auðlindir
Innan fárra vikna er stefnt að framlagningu frumvarps um breytingar á fiskveiðistjórnunarkerfinu sem tryggja á landsmönnum forræði yfir auðlindum sjávar og að þeir njóti eðlilegrar rentu af þeim. Sjávarútvegi hefur vegnað vel undanfarin misseri og hefur eigið fé greinarinnar tvöfaldast á milli ára. Þetta er margþætt mál og breytingar gera ríkar kröfur til allra um samstarfsvilja.
Rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma verður vonandi samþykkt á Alþingi innan tíðar. Með innleiðingu Árósarsamningsins, friðlýsingum svæða og mörgum fleiri aðgerðum hefur verið brotið í blað í umhverfismálum. Þá er í undirbúningi stofnun auðlindasjóðs.

Við ætlum okkur að ljúka endurskoðun stjórnarskrárinnar og koma í veg fyrir að sú merkilega lýðræðistilraun, sem við höfum beitt okkur fyrir, renni út í sandinn. Alþingi hefur til þessa reynst þetta gagngera umbótastarf um megn. Umbætur á svið lýðræðis- og mannréttindamála hafa verið og verða áfram eitt af forgangsverkefnum ríkisstjórnarinnar.


Varanlegan bata
Enginn þarf að velkjast í vafa um að þjóðin á síðasta orðið um aðild Íslands að Evrópusambandinu. Samkvæmt ákvörðun meirihluta Alþingis er nú verið að kanna til fullnustu kosti og galla aðildar. Afstaða stjórnarflokkanna til aðildar er ólík en virðing og umburðarlyndi fyrir ólíkum skoðunum er einmitt nauðsynleg í stórmálum sem þessu.

Það ætti ekki heldur að þurfa að vefjast fyrir neinum að ríkisstjórn jafnaðar, umhverfisverndar og vinstristefnu leggur sig fram nú sem endranær um að verja félagslegt réttlæti og jöfnuð. Meðal mikilvægra verkefna á þessu sviði er að vinna áfram að því að afla haldbærra gagna um skuldastöðu heimilanna eða einstakra hópa. Aðeins á slíkum grundvelli er hægt að útfæra áframhaldandi stuðning við fjölskyldur í vanda. Heildarendurskoðun almannatryggingakerfisins er enn eitt forgangsverkefnið sem mikilvægt er að ljúka á kjörtímabilinu.

Margar nágrannaþjóðir spyrja sig nú hvernig það megi vera að Íslendingum hafi tekist á svo skömmum tíma að fóta sig eftir stórfellt efnahagshrun. Mest er um vert að sýna fram á að batinn er hafinn og hefur allar forsendur til þess að verða varanlegur. Einnig að dýpri og frekari umbreytingar á þjóðfélaginu eiga enn eftir að bæta mannlífið og kjörin í landinu.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Betra samfélag