Innlent

Benedikt segir engan póker í gangi

Jakob Bjarnar skrifar
Bjarni spurði Katrínu hvort það stæði og hún vildi ekki mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og staðfesti hún það. Og þar standa málin.
Bjarni spurði Katrínu hvort það stæði og hún vildi ekki mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og staðfesti hún það. Og þar standa málin. visir/anton brink
Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, furðar sig á því sem fram kemur í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag, þá það að viðruð hafi verið sú hugmynd á fundi hans, Óttarrs Proppé formanns Viðreisnar og Katrínar Jakobsdóttur formanns Vinstri grænna á miðvikudag að mynduð yrði ríkisstjórn Sjálfstæðisflokki undir forystu Benedikts Jóhannessonar.

Katrín staðfesti að hún vildi ekki vinna með Sjálfstæðisflokki

Þetta segja Viðreisnarmenn spuna og átta sig ekki alveg á því hvaðan hann kemur.

„Ég spurði Katrínu hins vegar á fundinum hvort það stæði að hún vildi ekki vinna með Sjálfstæðisflokknum, hún staðfesti það og þá þurfti ekkert að ræða það frekar hvernig slík ríkisstjórn yrði skipuð,“ segir Benedikt í samtali við Vísi.

Ekkert rætt við Pírata

Hann gerir einnig athugasemd við það þar sem segir að í framhaldinu hafi Benedikt hafi falast eftir stuðningi Pírata til að fá stjórnarmyndunarumboðið.

„Það er alrangt. Ég hef einu sinni talað við fulltrúa Pírata. Birgitta Jónsdóttir hringdi í mig á mánudaginn. Og sagði mér frá þessari ákvörðun þeirra um að styðja minnihlutastjórn gegn ákveðnum skilyrðum. Það var bara það sem þau gerðu opinbert líka,“ segir Benedikt sem ekki hefur talað við Birgittu síðan þetta var. Né nokkurn Pírata ef því er að skipta.

„Ég hef í mesta lagi boðið nokkrum þingmönnum Pírata góðan daginn með bros á vör.“

Enginn í póker

Benedikt hefur fylgst lengi með stjórnmálum en er nú skyndilega kominn í miðju hinnar pólitísku refskákar. Hann segir að sér lítist í sjálfu sér ágætlega á það.

„Og ég verð að segja það að fram til þessa hefur enginn hinna pólitísku leiðtoga sagt neitt við fréttamenn sem þeir hafa ekki sagt við mig. Menn hafa ekki verið að spila póker. Ennþá, að minnsta kosti.“

Varðandi framhaldið þá segist Benedikt ekki vita annað en það sem fyrir liggur, þeir Óttarr fóru á fund Bjarna í gær. „Og sagði hann nákvæmlega það sem hann sagði við fréttamenn að hann ætlaði að taka sér helgina í að hugsa þetta. Það rímar allt saman. Svo er náttúrlega, hvað gerist síðan, þá kemur það bara í ljós. En ég veit ekkert meira.“


Tengdar fréttir

Benedikt verði forsætisráðherra

Rætt var á fundi Viðreisnar, VG og Bjartrar framtíðar hvort mynda mætti ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki með formann Viðreisnar sem forsætisráðherra. Viðreisn og Björt framtíð vilja starfa saman í ríkisstjórn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×