Tónlist

Beint úr tónleikaferðalagi Beyoncé og Jay Z í tónlistarmyndband með Erpi

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Gústi, Jay Z, Beyoncé og Erpur.
Gústi, Jay Z, Beyoncé og Erpur.
Tónlistarmaðurinn Erpur Eyvindarson og tökumaðurinn Ágúst Jakobsson undirbúa nú tökur á nýju myndbandi með Erpi við lagið Vökuvísa sem Erpur syngur ásamt Sölku Sól.

Ágúst, eða Gústi Jak eins og hann er oftast kallaður, kom nýverið heim frá París þar sem hann tók upp tónleika Beyoncé og Jay Z í París sem var hluti af tónleikaferðalaginu On the Run. Tónleikaupptakan var síðan notuð í sjónvarpsmynd HBO. 





Margret Hrafnsdóttir framleiðir myndbandið og segir að það hafi verið erfitt að ná Gústa og Erpi saman.

„Það er frábært að tengja þessa tvo snillinga, Erp og Gústa, í samstarf að gera þetta myndband. Þeir unnu síðast saman fyrir tíu árum. Þetta samstarf hefur átt sér nokkurn aðdraganda enda Gústi út og suður að vinna með stærstu nöfnum heims og Erpur að troða upp hér heima og erlendis þannig að sökum anna hjá okkur hefur þetta verið púsluspil,” segir hún og bætir við að tökur séu á næsta leyti.

„Það verður eftir þessu myndbandi tekið,” segir Margret dul og upplýsir ekki meira um hvernig myndbandið verður.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×