Körfubolti

Becky Hammon fyrsta konan sem verður aðalþjálfari í sumardeild NBA

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Becky Hammon.
Becky Hammon. Vísir/Getty
Becky Hammon er enn á uppleið hjá NBA-liði San Antonio Spurs og nú verður hún fyrsta konan sem verður aðalþjálfari í sumardeild NBA.

Hammon var aðstoðarþjálfari Gregg Popovich hjá San Antonio Spurs á síðasta tímabil og var þá ekki bara fyrsta konan sem fær fast starf sem aðstoðarþjálfari í NBA-deildinni heldur einnig sú fyrsta sem fær fastráðningu í fjórum stærstu atvinnumannadeildunum í Bandaríkjunum. .

Natalie Nakase var aðstoðarþjálfari hjá Los Angeles Clippers í sumardeildinni en Hammon er sú fyrsta til að stýra heilu þjálfarateymi. Gregg Popovich hefur mikla trú á henni og sýnir það með því að gefa henni þetta tækifæri.

Becky Hammon er 38 ára gömul og lagði sjálf skóna á hilluna eftir flottan feril með WNBA-liðunum San Antonio Stars og New York Liberty.

Becky Hammon mun stýra liði San Antonio Spurs í sumardeildinni í Utah sem fer fram frá 6. til 9. júlí en enginn af stórstjörnum Spurs-liðsins verður þó með liðinu.

Becky Hammon í þjálfarateymi San Anontio Spurs.Vísir/Getty
NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×