Fótbolti

Bayern Munchen heldur í toppsætið en Dortmund ekki langt undan

Stefán Árni Pálsson skrifar
Leikmenn FC Bayern fagna hér marki í dag.
Leikmenn FC Bayern fagna hér marki í dag. nordicphotos/getty
Fimm leikjum er lokið í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu en Bayern Munchen vann öruggan sigur á Mainz, 4-1, á Allianz-vellinum í Munchen í dag.

Arjen Robben og Mario Mandzukic gerðu sitt markið hvor fyrir heimamenn í leiknum en Thomas Müller skoraði tvö mörk en öll mörk FC Bayern komu í síðari hálfleiknum. Mainz gerði fyrsta mark leiksins í fyrri hálfleik en síðan ekki söguna meir.

Borussia Dortmund vann fínan sigur á Hannover, 1-0, en Marco Reus skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu eftir aðeins fjögurra mínútna leik.

Schalke vann góðan útisigur á Braunschweig, 3-2, og Eintracht gerði 1-1 jafntefli við Nürnberg.

Markalaust fór í leik Bremen og Freiburg.

FC Bayern er í efsta sætinu með 23 stig, stigi á undan Dortmund sem er í því öðru.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×