Fótbolti

Bayern heldur áfram að raða inn mörkum

Anton Ingi Leifsson skrifar
Bæjarar fagna.
Bæjarar fagna. Vísir/Getty
Bayern Munchen heldur áfram sigurgöngu sinni  í þýsku úrvalsdeildinni, en þeir unnu öruggan sigur á FC Köln í efstu deildinni þar í landi í gærkvöldi. Lokatölur 4-1.

Það voru ekki liðnar nema þrjár mínútur þegar Bastian Schweinsteiger skoraði fyrsta markið. Franck Ribery bætti öðru marki við sjö mínútum síðar.

Bayern höfðu unnið síðustu tvo leiki sína 8-0 gegn HSV og 6-0 gegn Paderborn og stefndi allt í aðra eins veislu. Anthony Ujah minnkaði þó muninn fyrir Köln rétt fyrir hálfleik.

Arjen Robben og Robert Lewandowski bættu við sitthvoru markinu í síðari hálfleik og lokatölur þriggja marka sigur Bayern, 4-1.

Bayern jók forskot sitt á toppi deildarinnar í ellefu stig, en Wolfsburg sem situr í öðru sætinu á þó leik til góða. Þeir mæta Werder Bremen á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×