Barnasáttmáli SÞ er lykill að stuðningi við börn sem eru þolendur mansals

Fréttablaðið Aðsendar greinar 01. febrúar 2012 06:00
Gordon Alexander yfirmaður Innocenti, rannsóknamiðstöðvar UNICEF
Gordon Alexander yfirmaður Innocenti, rannsóknamiðstöðvar UNICEF
Gordon Alexander skrifar:
Barn er alltaf barn, óháð stöðu þess eða aðstæðum.

Ef til vill hljómar þetta eins og klisja, en er þó staðreynd sem aldrei má gleymast. Þetta er kjarni Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem enn í dag – 22 árum eftir upptöku – myndar sterkan ramma utan um barnavernd og er leiðarstjarna þess fagfólks sem glímir við mansal á börnum.

Fjórar grundvallarreglur sáttmálans – að hagsmunir barnsins séu hafðir að leiðarljósi, börn sæti ekki mismunun, eigi rétt á að láta í ljós skoðanir sínar og rétt til lífsafkomu – eru sannkallaður verkfærakassi sem ætti að hjálpa stjórnvöldum, fagfólki og samfélaginu öllu að styðja við berskjölduð börn undir öllum kringumstæðum.

Það skiptir ekki máli hvort barn hefur sætt misnotkun í heimalandinu eða í kjölfar mansals; þessar sömu grundvallarreglur eiga við. Sú ætti að minnsta kosti að vera raunin, og þá með samræmdu sniði óháð lögsögu. Þannig má tryggja að í öllum stuðningi við fórnarlömb sé áherslan á eðli ofbeldisins fremur en kringumstæður eða ríkisfang barns.

Í nýrri skýrslu frá Innocenti, rannsóknamiðstöð UNICEF, Child Trafficking in the Nordic Countries: Rethinking strategies and national responses, er lögð áhersla á framfarir í meðferð málaflokksins í Danmörku, Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi, en öll hafa þessi lönd haft það að forgangsverkefni að takast á við mansal. Öll ríkin hafa stigið mikilsverð skref til endurbóta á því lagaumhverfi er varðar afbrot, innflytjendur, félagsþjónustu og barnavernd. Þrátt fyrir að Norðurlöndin séu í brennidepli skýrslunnar er umfangið miklu víðtækara og lærdóminn má heimfæra upp á öll lönd sem standa frammi fyrir málum er tengjast mansali og misnotkun á börnum.

Það sem komið hefur skýrt í ljós er að hólfaskipting barna eftir flokkunum á borð við „þolendur mansals“, „óskráðir innflytjendur“ eða „ólögmætir innflytjendur“ getur hæglega aukið vandann. Frá sjónarhóli barna skipta lagalegar skilgreiningar minna máli en sú staðreynd að þau hafa mátt sæta misnotkun.

Í skýrslunni segir berum orðum: „Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna býður upp á sterkari ramma til verndar börnum sem sætt hafa mansali og annarri misnotkun en lagaramminn utan um mansal.“

Ástæðan er að hluta til sú að skilgreiningin á „þolanda mansals“ getur verið óljós, og að erfitt getur reynst að bera kennsl á börn sem falla í þennan flokk. Í skýrslunni er einnig bent á að sérhæfð þjónusta verði gjarnan sundurleit og hana þurfi að samræma betur. Þessi þáttur skiptir sérstaklega miklu fyrir börn og ungmenni.

Eins og bent er á í skýrslunni: „Til dæmis má telja líklegt að barn sem hefur verið misnotað kynferðislega þurfi annars konar aðstoð en barn sem hefur verið neytt til að betla. Þörfin á félags- og sálfræðilegri ráðgjöf, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og lögfræðiþjónustu er mikil meðal barna sem eru fórnarlömb mansals og annarra glæpa, rétt eins og barna sem teljast innflytjendur eða hælisleitendur.“

Sú tilhneiging að setja börn á faraldsfæti í sama flokk, hvort sem þau hafa verið seld mansali eður ei, getur útsett þau fyrir mismunun innan kerfis sem einblínir á stöðu þeirra sem innflytjendur umfram stöðu þeirra sem börn. Þau geta verið svipt frelsi sínu, verið beygð af réttarkerfinu, verið send heim á vit óvissrar framtíðar, eða fengið lélega menntun og heilbrigðisþjónustu vegna þess að þau hafa ekki dvalarleyfi í viðkomandi landi.
Þetta ætti ekki að geta gerst, eins og kemur fortakslaust fram í Barnasáttmálanum:
Fórnarlömb mansals og önnur berskjölduð börn sem flytjast milli landa eiga að hafa sömu réttindi og aðgengi að þjónustu og börn sem hafa ríkisfang í viðkomandi landi, óháð lagalegri stöðu þeirra. Þetta er undirstöðuatriði í málefnum barna og tryggir að hagsmunir þeirra séu hafðir að leiðarljósi.

Þó er sáttmálinn engin töfralausn og grundvallarreglan „það sem er barninu fyrir bestu“ er enn í mótun og túlkun. Þá grundvallarreglu verður að nálgast á heildrænan hátt og taka tillit til skoðana barnsins, sem ætti einnig að hafa aðgang að barnvænu kerfi til að bera fram kvartanir og leita réttar síns.

Norðurlöndin eru í fararbroddi þegar kemur að vernd berskjaldaðra barna. Á Íslandi býður Barnahús upp á þverfaglega þjónustu við börn sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi, sem forðar þeim frá þeirri erfiðu upplifun að taka þátt í réttarhöldum; í Noregi er virkur félagslegur stuðningur við götubörn. Finnar hafa þróað staðlaða forskrift að ráðgjafarviðtölum við börn sem leita hælis og ekki eru í fylgd með fullorðnum; Svíar hafa fellt grundvallarreglu Barnasáttmálans um mismunun inn í handbók fyrir fagfólk sem vinnur með börnum sem eru þolendur mansals. Enn fremur leikur hin danska Miðstöð gegn mansali lykilhlutverk þegar kemur að því að samræma þjónustu ólíkra aðila.

Þrátt fyrir þessar framfarir eru enn gloppur sem þarf að taka á. „Þörf er á að fastsetja í landslögum réttindi tengd málefnum á borð við menntun og heilbrigðisþjónustu, þar eð þessi málaflokkur er oft háður geðþótta sveitarstjórna,“ er útskýrt í skýrslunni. Hins vegar er það hið almenna gildi Barnasáttmálans sem hefur hann yfir ólíkar skilgreiningar á mansali og ósamhæfð stuðningskerfi sem einkennast af sérfræðingum á borð við saksóknara, félagsþjónustu og útlendingastofnanir, sem vinna samkvæmt ólíkri hugmyndafræði og lagaramma.

Til að ná settum markmiðum verða stjórnvöld að takast á við mansal á börnum sem hluta af víðtækari nálgun við barnavernd, hafa Barnasáttmálann að leiðarljósi og festa hann í landslög.
Sömuleiðis er þörf á nánari samvinnu þeirra aðila sem að málaflokknum koma og samstilltri framfylgd ákvæða Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna svo hann fái verndað öll börn.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Barnasáttmáli SÞ er lykill að stuðningi við börn sem eru þolendur mansals