Sport

Barist í Skotlandi annað kvöld

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Þrír fræknir Íslendingar úr Mjölni berjast annað kvöld í Skotlandi. Bardagarnir fara fram í Headhunters Championship bardagasamtökunum í Falkirk og er fjaðurvigtarbelti í húfi.

Hrólfur Ólafsson (1-0) berst sinn fyrsta bardaga síðan hann lenti í erfiðum meiðslum í apríl 2013. Við undirbúning fyrir sinn annan bardaga sleit Hrólfur krossband og verður þetta hans fyrsti bardagi síðan í nóvember 2012.

Sunna Rannveig Davíðsdóttir (1-1) er fyrsta íslenska konan til að berjast í MMA en hún mun berjast sinn fyrsta bardaga síðan í september 2013. Erfiðlega hefur gengið fyrir Sunnu að fá bardaga en sjö andstæðingar hafa hætt við bardaga gegn henni. Það verður því kærkomið fyrir Sunnu mæta Helen Copus (2-0-1) annað kvöld.

Sjá einnig: Leiðin að búrinu-Sunna Rannveig Davíðsdóttir vs. Helen Copus

Bjarki Ómarsson (3-2) er einn efnilegasti bardagakappi þjóðarinnar. Bjarki berst um fjaðurvigtartitil bardagasamtakanna gegn Calum Murrie (5-1).

Sjá einnig: Leiðin að búrinu-Bjarki Ómarsson vs. Calum Murrie

Jón Viðar Arnþórsson, forseti Mjölnis, er með í för en þegar Vísir hafði samband var vigtun að hefjast. „Stemningin í hópnum er mjög góð. Ég er mjög bjartsýnn fyrir bardagana en þetta verða erfiðir bardagar,“ segir Jón Viðar.

„Sunna er að berjast tveimur þyngdarflokkum fyrir ofan sig gegn mjög sterkri glímustelpu. Bjarki berst um fjaðurvigtarbeltið gegn andstæðingi með taekwondo bakgrunn. Svo fer Hrólfur gegn sterkum glímukappa þannig að þetta verða allt hörku bardagar.“

„Þetta er hvergi sýnt beint þannig að við hvetjum bara fólk til að fylgjast með okkur á stórskemmtilegu Snapchatti Mjölnis undir mjolnirmma. Við munum svo snappa beltið í bak og fyrir þegar það verður komið í hús,“ segir Jón Viðar og hlær.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×