Innlent

Barði konu og nefbraut hana

Karlmaður hefur verið dæmdur í tveggja mánaða fangelsi fyrir að ganga í skrokk á konu og berja hana í andlitið. Hún nefbrotnaði og fékk mikla áverka í andliti og á líkama. Einnig fékk hún heilahristing og þjáðist af minnisleysi.

Maðurinn viðurkenndi sök greiðlega fyrir dómi, sem taldi árás hans á konuna að öllu tilefnislausa og ófyrirleitna. Maðurinn hafði áður gerst sekur um ölvunarakstur og var þá sviptur ökuréttindum í átján mánuði.

Refsing hans nú var skilorðsbundin, en honum gert að greiða sakarkostnað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×