Handbolti

Barcelona óstöðvandi

Anton Ingi Leifsson skrifar
Guðjón Valur var rólegur í dag.
Guðjón Valur var rólegur í dag. vísir/barcelona
Barcelona vann sextán marka sigur 41-25, á Benidorm í spænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en landsliðsfyrirliðinn, Guðjón Valur Sigurðsson, skoraði þrjú mörk.

Benidorm stóð í stórliðinu í fyrri hálfleik, en einungis munaði fjórum mörkum í hálfleik, 19-15. Í síðari hálfleik var allt annað uppá teningnum, en lokatölur urðu 41-25.

Barcelona hefur ekki tapað leik í spænsku deildinni í vetur, en liðið er með 44 stig á toppi deildarinnar. Guðjón Valur skoraði þrjú mörk eins og áður segir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×