Handbolti

Bara átta lið í úrvalsdeild kvenna í handbolta 2016-17 | Svona lítur þetta út

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elín Anna Baldursdóttir og félagar í FH spilar ekki í úrvalsdeildinni næsta vetur.
Elín Anna Baldursdóttir og félagar í FH spilar ekki í úrvalsdeildinni næsta vetur. Vísir/Stefán
Mótanefnd Handknattleikssambands Íslands hefur ákveðið að spilað verði í tveimur deildum í úrvalsdeild kvenna í handbolta næsta vetur. Mótanefnd HSÍ barst þátttökutilkynning frá 21 karlaliðum og 15 kvennaliðum fyrir keppnistímabilið 2016-2017.

Handknattleikssamband Ísland sendi frá sér fréttatilkynningu þar sem kemur fram hvernig deildarskiptingin verður næsta vetur í bæði karla og kvennaflokki.

Í kvennaflokki kemur inn eitt nýtt lið en það er Víkingur. Þar sem 15 lið eru skráð til keppni verður leikið í úrvalsdeild og 1. deild á næsta keppnistímabili. 8 lið verða í efstu deild og 7 í 1. deild.

Leikin verður þreföld umferð í hvorri deild. Eftir að deildarkeppni lýkur verður leikin 4 liða úrslitakeppni um Íslandsmeistaratitilinn. Neðsta lið úrvalsdeildar fellur í 1.deild eftir tímabilið og tekur efsta lið 1.deildar sæti þess. Liðið í 7. sæti úrvalsdeildar og liðin í sætum 2 til 4 í 1. deild munu svo leika umspil um eitt laust sæti í úrvalsdeild.

 

Í karlaflokki koma inn 3 ný lið en það eru ungmennalið Akureyrar og ÍBV ásamt Hömrunum. 10 lið verða áfram í úrvalsdeild og verða 12 lið í 1. deild. Leikin verður tvöföld umferð í 1. deild en áfram þreföld í úrvalsdeild. Því verður fjölgað í 12 lið í úrvalsdeild karla tímabilið 2017-2018 að því gefnu að liðafjöldi verði 20 lið eða fleiri.

Deildirnar í handboltanum næsta vetur líta því þannig út:

Úrvalsdeild karla

Afturelding

Akureyri

FH

Fram

Grótta

Haukar

ÍBV

Selfoss

Stjarnan

Valur

Úrvalsdeild kvenna

Fram

Fylkir

Grótta

Haukar

ÍBV

Selfoss

Stjarnan

Valur

1. deild karla

Akureyri U

Fjölnir

Hamrarnir

HK

ÍBV U

ÍF Mílan

ÍH

ÍR

KR

Víkingur

Þróttur

1. deild kvenna

Afturelding

FH

Fjölnir

HK

ÍR

KA/Þór

Víkingur




Fleiri fréttir

Sjá meira


×