Erlent

Banna rafrettur á vinnutíma

Ingibjörg Bára Sveinsdóttir skrifar
Starfsmenn Kaupmannahafnar mega ekki lengur reykja rafrettur á vinnutíma.
Starfsmenn Kaupmannahafnar mega ekki lengur reykja rafrettur á vinnutíma. Vísir/Getty
Borgarstarfsmenn í Kaupmannahöfn mega hvorki reykja venjulegar sígarettur né rafrettur á vinnutíma.

Ninna Thomsen, sem er í Sósíalíska þjóðarflokknum og formaður heilbrigðisnefndar borgarinnar, lýsti yfir ánægju með ákvörðunina. Verkefnisstjóri hjá baráttusamtökum gegn krabbameini, Niels Them Kjær, benti á að í sumum tegundum rafrettna hefðu fundist efni sem eru skaðleg heilsunni. Danska ríkisútvarpið greindi frá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×