Bangsi bílaþjófur gripinn glóðvolgur Óli Tynes skrifar 21. október 2009 15:28 Augu bílaþjófsins voru glóðu eins og í fjandanum sjálfum. Mynd/Lögreglan í Kólóradó
Lögreglan í Florissant í Kólóradó fylki var snögg á vettvang þegar hún fékk tilkynningu um að rumur einn mikill væri að stela bíl fyrir framan íbúðarhús í bænum. Hjónin sem áttu bílinn höfðu vaknað við að þjófavarnarkerfi hans fór í gang og sáu gríðarlega þrekvaxinn mann vera að koma sér fyrir undir stýri. Þegar lögreglumenn nálguðust bílinn í myrkrinu með byssurnar í hönd, sáu þeir að þjófurinn var vissulega þrekvaxinn. Og þeim brá verulega við að sjá að augu hans voru glóandi eins og í fjandanum sjálfum. Hann gerði þó enga tilraun til að aka á brott heldur sat bara og horfði á þá. Og þegar nær kom sáu þeir að þetta var hinn myndarlegasti bangsi. Bjarndýr fara nú að leggjast í híði og eru dugleg við að safna á sig spiki fyrir svefninn langa. Þau éta allt sem þau ná í. Bangsi bílaþjófur hafði fundið matarlykt úr bílnum, opnað hurðina og stungið sér inn. Hurðin lokaðist hinsvegar á eftir honum og hann kunni ekki að opna innanfrá. Lögreglumennirnir leystu vanda hans með því að opna hurðina fyrir hann. Bangsi var fljótur að stinga sér út og sást síðast á hraðferð til fjalla.
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Facebook lá niðri Erlent Fleiri fréttir Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Samþykkt friðarsamkomulag liggi fyrir Dregur umdeildar skýrslur um Havana-heilkennið til baka Facebook lá niðri Kaninn pakkar saman í Evrópu Stríðið í Úkraínu orðið lengra en fyrri heimsstyrjöldin Hæstiréttur bannar Alabama að taka menn af lífi með köfnunarefni Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Sjá meira