Erlent

Bandarískir hermenn í haldi Írana

Bjarki Ármannsson skrifar
Bandarískt flugmóðurskip í Persaflóa.
Bandarískt flugmóðurskip í Persaflóa. Vísir/AP
Íranski herinn hefur í haldi tíu hermenn bandaríska sjóhersins en annan bát þeirra rak inn í íranska landhelgi eftir vélarbilun um borð. Mennirnir eru í haldi á eyjunni Farsí á miðjum Persaflóa.

Bandaríkjastjórn vinnur að því að fá mennina lausa úr haldi en að því er fjölmiðlar vestanhafs greina frá, er Írönum ljóst að um mistök voru að ræða og hefur verið samþykkt að láta þá lausa á næstu klukkustundum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×