Bandaríkjamenn líklegri til að lenda í tölvuvandræðum 8. júní 2011 11:07 Bandaríkjamenn gætu margir lent í töluverðum vandræðum með nýju IPv6 tölurnar Mynd/ AP
Bandaríkjamenn eru mun líklegri en Íslendingar til að lenda í vandamálum tengdum IP-tölu breytingunni sem mörg stór fyrirtæki á borð við Google, Facebook og Yahoo eru að prufukeyra í dag að sögn Hjálmtýrs Hafsteinssonar, dósents í tölvunarfræði við Háskóla Íslands. Íslendingana sem enn tengjast við internetið í gegnum módem megi nánast telja á annari hendi, ef þeir eru yfirleitt einhverjir. IP-tölur, sem gefnar eru hverju nettengdu tæki og gera nettenginguna sjálfa mögulega, eru nú farnar að vera af skornum skammti og hefur nýtt kerfi því verið skapað. Í dag eru mörg stór netfyrirtæki að prófa þetta kerfi en það gæti ollið þeim vandræðum sem styðjast við gamlar módemtengingar og gætu sumir jafnvel alls ekki náð að tengjast. Hjálmtýr segir að þó svo að tæknin sé langt komin í Bandaríkjunum sé hún ekki eins útbreidd og margur myndi halda. Hann segist hafa rekist á að sumt fólk þar í landi sé enn að styðjast við MS-DOS og eldgamla tækni sem þarf jafnvel að tengja við símtólið í heimasímanum. Það séu því margir Bandaríkjamenn sem styðjist enn við módemtengingar og og gætu þar af leiðandi lent í hvimleiðum vandamálum tengdum IP-tölu breytingunni. Flestir Íslendingar eru hinsvegar löngu komnir með nýrri tengingar við netið og munu símafyrirtækin geta leyst öll vandamál sem gætu komið upp hjá ADSL notendum. Hjá venjulegum íslenskum notendum mun breytingin því eiga sér stað án þess að við tökum mikið eftir því.
Tengdar fréttir Hættir internetið á morgun, þann 8. júní? Sökum skorts á svokölluðum IP tölum, sem eru nauðsynlegar til að gera internettengingu mögulega, mun Google ásamt fleiri internetfyrirtækjum kveikja á nýju kerfi á morgun en það gæti leitt til þess að þeir sem eiga gamlar tölvur nái hreinlega ekki að tengjast netinu. 7. júní 2011 22:45 Mest lesið Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Innlent Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Innlent „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Innlent „Afleiðingarnar muni vara í einhver ár jafnvel“ Erlent „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Innlent Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Innlent Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð Innlent Fleiri fréttir Krapvélar í yfirvinnu í góða veðrinu Bandaríkjastjórn lokar á aðgang erlendra ríkisborgara Uppsagnir leggjast þungt á Vopnafjörð „Okkur er gert að vera áfram í drullusvaðinu á Sævarhöfða“ Lokað vegna skorts á starfsleyfi „Við horfum bjartsýn fram á veg“ Þrjár aflýsingar hjá Icelandair Hægt að skoða þyrlur og sprengjuleitarbúnað Gæslunnar Viðgerð Herjólfs dregst um þrjár vikur: „Vonum að þetta fari nú að verða búið“ Tilgangslaust stríð og æfir hjólabúar „Þú getur ekkert forðað þér, það verður bara að takast á við þetta“ Hlaðvarparar hrósa sigri: „Logi er greinilega nettur gæi“ Bein útsending: Brautskráning Háskóla Íslands Húðlæknir bregst við brúnkutískunni Þremur skemmtistöðum lokað í sameiginlegum aðgerðum Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni Sjá meira
Hættir internetið á morgun, þann 8. júní? Sökum skorts á svokölluðum IP tölum, sem eru nauðsynlegar til að gera internettengingu mögulega, mun Google ásamt fleiri internetfyrirtækjum kveikja á nýju kerfi á morgun en það gæti leitt til þess að þeir sem eiga gamlar tölvur nái hreinlega ekki að tengjast netinu. 7. júní 2011 22:45