Viðskipti innlent

Baggalútur græðir milljónir á jólunum

Haraldur Guðmundsson skrifar
Jólatónleikar Baggalúts hafa verið vel sóttir síðustu ár.
Jólatónleikar Baggalúts hafa verið vel sóttir síðustu ár.
„Við erum auðvitað hæstánægðir með að einhver nenni að mæta en jólavertíðin er um 90 prósent af okkar tónleikaveltu,“ segir tónlistarmaðurinn Bragi Valdimar Skúlason um 4,7 milljóna króna hagnað Baggalúts ehf. í fyrra.

Bragi er framkvæmdastjóri fyrirtækisins en það rekur samnefnda heimasíðu og heldur utan um tónleikahald og plötuútgáfu Baggalúts. Samkvæmt ársreikningum fyrirtækisins var það rekið með samtals 9,9 milljóna króna hagnaði árin 2012 og 2013. Í fyrra skilaði miðasala á tónleika hlljómsveitarinnar rúmum 52 milljónum króna.

„Við héldum ellefu jólatónleika í fyrra og erum aðallega að sprikla í desember. Jólavertíðin hefur verið að vaxa en þessu fylgir auðvitað kostnaður á móti,“ segir Bragi. Hann bendir á að hljómsveitin gaf einnig út plötuna „Mamma þarf að djamma“ í fyrra og spilaði á árshátíðum og öðrum skemmtunum.

Baggalútur ehf. er í eigu Braga og sex annara stofnenda vefsíðunnar baggalutur.is. Eigendurnir eiga allir 14,3 prósent í fyrirtækinu og hafa aldrei greitt sér út arð.

„Við erum ekki alveg orðnir nógu klárir í því og þurfum að fara að kynna okkur hvernig þessar arðgreiðslur virka. Við segjum bara að við séum að safna okkur fyrir okkar eigin tónlistarhúsi eða nýjum höfuðstöðvum,“ segir Bragi og hlær.

Fyrstu jólatónleikar Baggalúts voru haldnir í Iðnó á Þorláksmessu árið 2006. Uppselt er á alla þrettán jólatónleikana sem hljómsveitin hyggst halda á þessu ári.

„Við verðum bara í bænum þetta árið en við vorum einnig í Hofi á Akureyri í fyrra. Megnið af sveitinni er í útlöndum og við höfum bara rétt rúma viku til að ljúka okkur af og getum því ekki farið norður,“ segir Bragi.

„Svo gæti ég trúað því að við færum að stefna á plötu núna á næsta ári en við þurfum að sjá hvernig það þróast því það eru allir út um hvippinn og hvappinn. Við erum eins og alvöru stórfjölskylda því við hittumst bara á jólunum.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×