Fótbolti

Bættu vafasamt met Man. Utd.

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Leikmenn Benevento voru niðurlútir eftir enn eitt tapið.
Leikmenn Benevento voru niðurlútir eftir enn eitt tapið. vísir/getty
Ítalska úrvalsdeildarliðið Benevento bætti vafasamt met um helgina.

Benevento tapaði þá 1-2 fyrir Sassuolo á heimavelli. Sigurmark gestanna kom þegar fjórar mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Þetta var þrettánda tap Benevento í fyrstu 13 umferðum ítölsku deildarinnar.

Liðið bætti þar með met Manchester United frá 1930-31 yfir verstu byrjun í fimm bestu deildum Evrópu frá upphafi. United tapaði fyrstu 12 leikjum sínum þetta tímabil og féll.

Benevento vann sig upp um tvær deildir á jafnmörgum árum en það lítur allt út fyrir að stoppið í ítölsku úrvalsdeildinni verði stutt. Benevento er rótfast við botn deildarinnar, 10 stigum frá öruggu sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×