MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 03:00

Slegist í úthverfi Stokkhólms

FRÉTTIR

Bændur enda flestir á skrá lögreglunnar

Fréttablaðið Innlent 06. október 2012 01:00
  • Liðin er sú tíð að áburður fáist í 50 kílóa pokum. Núna fer öll afhending fram í stórsekkjum sem taka fimm til sex hundruð kíló. Sekkirnir hér að ofan fundust heima hjá Anders Behring Breivik í Noregi.Nordicphotos/AFP
Líkur eru á að lögreglu berist í hrönnum tilkynningar um áburðarkaup bænda verði nýtt frumvarp til vopnalaga að veruleika. Til stendur að leggja frumvarpið fram á þingi eftir helgina. Í því er miðað við að tilkynna þurfi um sölu á áburði sem nota megi til að búa til sprengiefni fari magnið yfir 500 kíló á sex mánaða tímabili.

„Þetta gengur ekki upp,“ segir Haraldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Íslands. „Meðalbú kaupir aldrei undir 20 tonnum.“ Haraldur segir umræðuna um aukið eftirlit með áburðarkaupum þekkta erlendis frá og hafi til að mynda komið upp í Noregi eftir ódæði Breiviks þar í landi. Hann varar hins vegar við því þjóðir láti hrekja sig út í „eftirlits- og leyfafargan“, bændur verði illa settir undir vopnalög. „500 kíló samsvara einum sekk af áburði og það kaupir enginn minna en það.“

Haraldur hefur ekki séð frumvarpið, en gerir ráð fyrir að Bændasamtökin veiti Alþingi umsögn sína vegna þess. Hann segir samtökin þó geta sætt sig við beitingu vægustu úrræða, líkt og lagt er til í frumvarpinu sem gerir ráð fyrir að áburðarsalar afhendi lögreglu lista yfir þá sem hafi undir höndum tiltekið magn af áburði. Eftir nokkra umræðu í Noregi hafi einmitt verið raunin að fara þá leið, fremur en að leggja á bændur íþyngjandi reglur um meðferð áburðar. „Og við getum kannski ekki sagt neitt við því.“
Hertar reglur um vopnaeign og meðferð skotvopna eru hins vegar fagnaðarefni, að mati Ívars Erlendssonar, félaga í Skotveiðifélagi Íslands (Skotvís) en hann sat í nefnd um endurskoðun vopnalaga. „Mér líst vel á þetta, að megninu til er þetta það sem við lögðum til á sínum tíma,“ segir hann og kveður félagsmenn vona að frumvarpið fari að mestu óbreytt í gegnum þingið.

Þó segir Ívar að í heildarendurskoðun á vopnalögunum hefðu félagsmenn viljað sjá meiri tilslakanir í sambandi við vopnaeign. Hafi einhverjum verið treyst til þess að fara með skotvopn, ætti ekki að skipta máli hvers lags vopn er um að ræða, svo fremi sem í lagi sé með meðferðina á þeim og geymsluaðferðir. „Þannig ætti ekki að skipta máli hvort viðkomandi er með skammbyssu, riffil eða haglabyssu.“

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra segir að með frumvarpinu sé reynt að þræða gullinn meðalveg þannig að auknar skorður í vopnaeign þrengi ekki að skotveiðimönnum eða íþróttamönnum á sviði skotfimi.

olikr@frettabladid.is
kolbeinn@frettabladid.is

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 21. maí 2013 23:38

Segist alltaf hafa trúað því að sonur sinn færi í pólitík

"Ég treysti honum mjög vel að sinna þessu af alúð, festu og sanngirni,“ sagði Gunnlaugur M. Sigmundsson, faðir Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar formann Framsóknarflokksins, spurður hvernig honum ... Meira
Innlent 21. maí 2013 23:18

Framsóknarflokkurinn byrjar með fjóra ráðherra

Framsóknarflokkurinn mun byrja með fjóra ráðherra samkvæmt heimildum fréttastofu. Meira
Innlent 21. maí 2013 23:05

Verðandi forsætisráðherra: Gengið í að leysa óleyst vandamál

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins og verðandi forsætisráðherra, sagði í samtali við fréttastofu að ný ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks gengi annarsvegar út að... Meira
Innlent 21. maí 2013 22:47

Hanna Birna gerir fastlega ráð fyrir ráðherraembætti

Hanna Birna Kristjánsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir fund flokksráðsins fyrr í kvöld hafa verið afar góðan. Spurð hvað felist í nýjum stjórnarsáttmála sem var samþykktur á fundinum, s... Meira
Innlent 21. maí 2013 22:23

Ráðherraskipan ákveðin annað kvöld - ekkert gefið í þeim efnum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ráðherraskipan innan flokksins verði ákveðin á þingflokksfundi annað kvöld. Meira
Innlent 21. maí 2013 21:09

Sigmundur Davíð verður forsætisráðherra

Bæði Framsóknar- og Sjálfstæðisflokkur fá fimm ráðuneyti. Meira
Innlent 21. maí 2013 20:42

Aðgerðarhópur gegn ESB fagnar myndun „fullveldisstjórnar“

Fundir Flokksráðs Sjálfstæðisflokksins í Valhöll og Miðstjórn Framsóknarflokksins í Rúgbrauðsgerðinni, eru byrjaðir, en þar verður nýr stjórnarsáttmáli kynntur fyrir félagsmönnum og atkvæði greidd um ... Meira
Innlent 21. maí 2013 20:07

Ný ríkisstjórn kynnt á Laugarvatni á morgun

Formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa boðið til blaðamannafundar á Laugarvatni klukkan 11:15 á morgun. Á fundinum munu formennirnir, Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediktsson un... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:48

Þarf að auka aga og skerpa á vinnubrögðum samningsaðila

Breytinga er þörf á því hvernig staðið er að gerð kjarasamninga og nauðsynlegt er að auka aga og skerpa vinnubrögð samningsaðila. Þetta er niðurstaða vinnuhóps samtaka launafólks og vinnuveitenda sem ... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:30

Ráðherra segist fara bil beggja

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra stækkaði í dag bannsvæði hvalveiða á Faxaflóa. Forkastanleg vinnubrögð, segir þingmaður Sjálfstæðisflokks, enda sé verið að taka burt svæði þar sem áttatíu... Meira
Innlent 21. maí 2013 19:12

Hart deilt um vegaframkvæmdir við Gálgahraun

Gagnrýnendur færslu Álftanesvegar um Gálgahraun segja að ekki hafi verið farið að tilmælum innanríkisráðherra sem vildi að forsendur framkvæmdarinnar yrðu endurskoðaðar. Bæjarstjórn Garðabæjar og Vega... Meira
Innlent 21. maí 2013 18:26

Ráðuneytum verður fjölgað - stjórnarsáttmáli kynntur í kvöld

Bæði ráðuneytum og ráðherrum verður fjölgað með nýrri ríkisstjórn. Stjórnarsáttmáli Framsóknar- og Sjálfstæðisflokks tekur meðal annars á skuldamálum heimilanna. Hann verður kynntur flokksmönnum í kvö... Meira
Innlent 21. maí 2013 17:46

Nauðgaði félaga sínum

Rúmlega tvítugur karlmaður var dæmdur í 15 mánaða óskilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að nauðga vini sínum. Hinn dæmdi átti afmæli þegar brotið átti sér stað í desember árið 2... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:36

Íslenski dansflokkurinn og sinfónían saman í fyrsta sinn í Eldborg

Íslenski dansflokkurinn og Sinfóníuhljómsveit Íslands fara í eina sæng á Listahátíð í Reykjavík um helgina. Þar munu þau flytja tvö af frægustu danstónverkum tónskáldsins Igors Stravinskis á Eldborgar... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:20

Forsetinn boðar Sigmund Davíð á fund

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun eiga fund á morgun með Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, formanni Framsóknarflokksins, þar sem væntanlega verður farið yfir niðurstöður stjórnarmyndunarviðræðn... Meira
Innlent 21. maí 2013 16:12

Óskað eftir vitnum að umferðarslysi

Ekið á gangandi vegfaranda í Skipholti. Meira
Innlent 21. maí 2013 16:05

Griðland hvala stækkað

Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvegaráðherra hefur ákveðið að stækka verulega griðasvæði Faxaflóa þannig að svæðið nái frá Garðskagavita og í beina línu að Skógarnesi. Þetta kemur fram á vef atvinnuve... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:52

Helgi Hjörvar kjörinn formaður þingflokks

Helgi Hjörvar, 9. þingmaður Reykjavíkurkjördæmis Suður, var kjörinn formaður þingflokks Samfylkingarinnar á þingflokksfundi í dag. Í tilkynningu frá Samfylkingunni kemur fram að með Helga voru kosin í... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:31

Ofurmenni hlaupa upp Esjuna

Esja Ultra ofurhlaupið verður haldið 22. júní næstkomandi. Boðið verður upp á fjórar vegalengdir þar sem fólk getur hlaupið 1, 2, 5 eða 10 hringi upp að Steini innan tímamarka. Þá verða einnig þriggj... Meira
Innlent 21. maí 2013 15:01

Karl ánægður með komandi ríkisstjórn

"Ég var mjög ánægður með það sem ég heyrði frá honum,“ segir Karl Garðarsson, verðandi þingmaður Framsóknarflokksins. Meira
Innlent 21. maí 2013 14:27

Útkall vegna slæms mataræðis eiginmanns

Lögregla leysti ágreining hjóna á Suðurnesjunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 13:43

Þau sátu í íslensku dómnefndinni

Sérstök dómnefnd hefur helmings vægi til móts við símakosningu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Dómnefndin er því mikill úrslitavaldur í því hvernig úrslitin ráðast. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:55

„Er fólk ekki betur innrætt en þetta?“

Bubba Morthens blöskrar umræðuhefðin í athugasemdakerfunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:45

Uppgjör Eurovision

Ísland gaf Danmörku fullt hús stiga í Eurovision en fékk aðeins 1 frá þeim. Íslenska lagið fékk flest stig frá Þýskalandi, 8 talsins. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:21

Vinkona Eyglóar komst af í hamförunum í Oklahoma

Eygló Harðardóttir alþingismaður var skiptinemi í Oklahoma fyrir rúmum áratug, og þekkir vel til óvissu og hræðslu við hvirfilbylina sem fara þar í gegn ár hvert á vorin. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Bændur enda flestir á skrá lögreglunnar
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000