Bændasamtökin: ríki utan ríkisins?

Fréttablaðið Aðsendar greinar 27. janúar 2012 06:00
Þórólfur Matthíasson
hagfræðiprófessor
Þórólfur Matthíasson hagfræðiprófessor
Þórólfur Matthíasson skrifar:
Í 15. gr. svokallaðs búnaðarlagasamnings sem gerður er á grundvelli laga nr. 70/1998 er kveðið á um að Bændasamtök Íslands skuli halda aðskildum fjármunum sem til samtakanna renna úr ríkissjóði og öðrum fjárreiðum sínum. Þá er í sömu grein kveðið á um að Bændasamtökin skuli afhenda sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu endurskoðaðan ársreikning sinn. Samþykktir Bændasamtakanna kveða einnig á um að fjárhagur starfsemi sem rekin er í umboði ríkissjóðs og á hans kostnað skuli aðskilinn frá annarri starfsemi Bændasamtakanna.

Ég hef nú, eftir talsverða eftirgangsmuni, fengið aðgang að rekstrarreikningshluta ársreiknings Bændasamtakanna fyrir nokkur undangengin ár. Reikningarnir bera ekki með sér að virtur sé sá skýri aðskilnaður ríkissjóðstekna og ríkissjóðsverkefna á einn veg, ráðgjafarþjónustu á annan veg og almennri félagsstarfsemi Bændasamtakanna á þriðja veg sem áskilinn er í samningi og samþykktum.

Reikningarnir bera með sér að velta Bændasamtakanna sé um 600 milljónir króna á ári. Félagsgjöld aðildarfélaganna eru heilar 250 þúsund krónur(!), auglýsingatekjur og áskriftargjöld Bændablaðsins um 45 milljónir, útseld skýrsluvélaþjónusta um 11 milljónir og hugbúnaðarsala um 30 milljónir. Beinar greiðslur úr ríkissjóði til Bændasamtakanna virðast nálægt 350 milljónum króna árlega. Ekki verður ályktað með því að skoða ársreikninginn hversu háar greiðslur Bændasamtökin fá frá ríkissjóði fyrir verktöku af ýmsu tagi. Framsetning ársreikningsins er því með þeim hætti að ekki er hægt að útiloka að greiðslurnar nemi allt að 400-500 milljónum króna á ári.

Ráðgjafaþjónusta Bændasamtakanna virðist niðurgreidd um ríflega 100 milljónir króna. Skýrsluvéla- og forritunarþjónusta virðist rekin með 70 milljóna króna halla. Hluti þeirrar ráðgjafar sem samtökin veita er hefðbundin rekstrarráðgjöf sem aðrir rekstraraðilar en bændur þurfa að kaupa fullu verði af endurskoðunarstofum eða öðrum sérhæfðum aðilum. Önnur fyrirtæki en þau sem rekin eru af bændum þurfa að greiða forritun og tölvuvinnslu fullu verði. Það er fyllsta ástæða til að velta fyrir sér hvort það sé skynsamleg ráðstöfun skattpeninga að nota þá til að veita bændum hefðbundna rekstrarráðgjöf og til að skrifa bókhaldsforrit. Reyndar má spyrja hvort slík ráðstöfun stangist ekki á við ákvæði samkeppnislaga.

Athygli vekur að Útgáfu- og kynningarsvið, sem m.a. sér um útgáfu Bændablaðsins, er rekið með 30-50 milljón króna halla árlega. Ljóst er að sá halli er ekki greiddur af aðildarsamtökum Bændasamtakanna, frekar en annar halli af einstökum starfssviðum. 250 þúsund króna árlegt framlag aðildarsamtakanna dugar ekki einu sinni til að dekka hallann af rekstri kaffistofunnar sem virðist 6-7 milljónir króna á ári. Sú spurning vaknar hvort Bændablaðið, sem dreift er víða um land og er þekkt af nokkuð eintóna, sumir segja sérlundaðri ritstjórnarstefnu, sé í raun kostað af skattgreiðendum.

Þá má og spyrja, með hliðsjón af lélegri rekstrarafkomu svokallaðra búreikningsbúa, hvort ekki sé hægt að bæta rekstrarráðgjöf sem bændur fá. Verður það ekki að nokkru leyti að skrifast á reikning ráðgjafanna að meðalsauðfjárbú á landinu nær því ekki að skapa tekjur til að greiða bændum og öðru starfsliði laun eða standa undir vaxtagreiðslum? Á ráðgjöfin ekki einhverja sök í því að skattgreiðendur greiða öll laun og allan fjármagnskostnað meðalsauðfjárbúsins? Þarf ekki að taka slíka ráðgjöf til endurskoðunar? Er ekki kominn tími til þess að fá erlenda úttektaraðila til að gera úttekt á gæðum þeirrar þjónustu og þeirri ráðgjöf sem Bændasamtökin veita?

Ekkert verður fullyrt með vissu um eignastöðu Bændasamtakanna nema hafa aðgang að efnahagsreikningshluta ársreiknings. En sú staðreynd að hreinar fjármunatekjur samtakanna eru allt að 150 milljónir króna bendir til þess að hreinar eignir Bændasamtakanna séu af stærðargráðunni 1 til 3 milljarðar króna. Hvorki rekstur Bændablaðsins á undangengnum áratugum, né aðildarfélagaframlögin eru af þeirri stærðargráðu að hafa byggt upp eiginfjárstöðu í milljarðaklassanum.

Löggjafinn gerir eðlilega strangar kröfur til meðferðar ríkisstofnana á skattfé. Fjársýsla ríkisins, fjármálaráðuneyti og Ríkisendurskoðun margmeta hvort tiltekin ráðstöfun fjármuna sé réttmæt. Sé ríkisstofnun ofhaldin í fé er henni ekki heimilt að byggja upp eigið fé eða ráðstafa fé til óskyldrar starfsemi, heldur er henni skylt að senda fjármunina aftur til ríkisféhirðis. Megnið af umsvifum Bændasamtakanna er í raun umsýsla með skattfé. Samtökin þurfa þó ekki að hlíta þeim ströngu reglum um réttmætt tilefni útgjalda sem ríkisstofnanir þurfa að gera. Ríkisstofnun myndi t.d. ekki komast upp með að gefa út vikurit um hugðarefni og hagsmunamál forstjóra stofnunarinnar. Hvað þá að prenta í risaupplagi og dreifa í sveitir og kaupstaði auk sundstaða og verslanamiðstöðva höfuðborgarinnar.

Búnaðarlagasamningur Bændasamtakanna og ríkisstjórnarinnar er á skjön við eðlilega stjórnsýslu og eðlilegt eftirlit með ráðstöfun ríkissjóðstekna. Bændasamtökin eru í raun ríki við hlið ríkisins sem virðast geta ráðstafað skatttekjum eftirlitslítið og án þess að virða ákvæði samninga og eigin samþykkta um framsetningu ársreiknings. Reglur eru til að fara eftir, ekki til að brjóta, þó annað megi sjálfsagt álykta út frá málum kenndum við iðnaðarsalt og kadmíumblandaðan áburð.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Aðsendar greinar

Aðsendar greinar 23. maí. 2012 16:50

Ég hafði val

Í nokkur ár hef ég heyrt málefnaleg rök um þróun handboltans sem og innihaldslausar umræðu...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Sátt í Aserbaídsjan

Borgin Shusha tilheyrði Aserbaídsjan fram til 8. maí 1992, þegar hún var hernumin af Armen...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Ljósnet fyrir neytendur

Síminn hefur nýlega sagt frá því að fyrirtækið hafi hafið annan hluta Ljósnetsvæðingar sem...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Til Heiðu

Ekki hafði ég ætlað mér að standa í ritdeilu en í svari Heiðu Kristínar Helgadóttur (Til k...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Aðbúnaður dýra á Íslandi

23-25. des. sl. var viðtal í Fréttatímanum við Árna Stefán Gunnarsson þar sem hann m.a. tj...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Pólitískt hlutverk forsetans

Andstætt því sem stundum er gefið í skyn eru íslensk stjórnlög að meginstefnu skýr um stjó...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Lína lifir!

Á fundi sínum í Ósló 26. apríl sl. samþykktu norrænu mennta- og menningarmálaráðherrarnir ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Jákvæð samskipti

Einelti er því miður afar alvarlegt samfélagslegt vandamál og sem slíkt er nauðsynlegt að ...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Slegist við strámann á Fjöllum

Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðani...  

Meira
Aðsendar greinar 23. maí. 2012 06:00

Öflugt sjúkrahús - kjarni málsins

Um þessar mundir er í nágrannalöndum Íslands víða verið að rífa sjúkrahúsbyggingar sem ekk...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Flokkur eða hagsmunasamtök?

Meðan hagsmunasamtök berjast fyrir afmarkaðan hóp manna sem á eitthvað sameiginlegt, berja...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Sérfræðingur að sunnan

Helga Vala Helgadóttir hefur í nýlegu viðtali við Fréttatímann og í grein í Fréttablaðinu ...  

Meira
Aðsendar greinar 22. maí. 2012 06:00

Opið bréf til menntamálaráðherra

Nú í vor sóttu foreldrar þroskaskerts drengs á ellefta ári um skólavist fyrir drenginn í K...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 16:10

Stuðningsgrein: Að kveða burt snjóinn

Það blása frískir og fjörugir vorvindar um landið. Æðarfuglinn hreiðrar um sig í Bessastað...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Nýja háskólasjúkrahúsið – kjarni málsins

Umræðan um risabyggingu nýs spítala í miðbæ Reykjavíkur er hafin. Halldór Laxness orðaði u...  

Meira
Aðsendar greinar 21. maí. 2012 06:00

Ráðherrann og samræðugenin

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði einkar athyglisverða grein í Fréttablaðið...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Forseti og siðferði

Í samfélögum Vesturlanda nú á dögum eru tvær valdamiðstöðvar helstar. Önnur er á vettvangi...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Hvenær vegur maður að…

Þann 30. apríl sl. voru 15 og 16 ára gamlir hælisumsækjendur dæmdir í 1 mánaðar langt óski...  

Meira
Aðsendar greinar 19. maí. 2012 06:00

Ný atvinnustefna – framkvæmdum hraðað

Aðgerðir ríkisstjórnarinnar í efnahagsmálum hafa skilað áþreifanlegum árangri. Enn dregur ...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 12:25

NASA - hugleiðing

Þegar ég las greinina hans Páls Óskars þar sem hann sagði frá því búið væri að segja upp s...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Forsetinn: Tákn eða afl

Ég held ekki að það sé sérlega eftirsóknarvert að vera forseti. Líklega er þó skárra að ve...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Þegar ég missi trúna á mannkyninu

Heima í Neskaupstað er eitt af þeim glæsilegu félagsheimilum sem landið státar af. Í því f...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Verður þá enginn fiskur veiddur meir?

Útgerðarfyrirtæki landsins auglýsa nú grimmt gegn fyrirhuguðum breytingum á fiskveiðistjór...  

Meira
Aðsendar greinar 18. maí. 2012 06:00

Stefnumót að vori

Það vorar og Listahátíð í Reykjavík verður sett í dag. Næstu vikur verður hægt að næra and...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Til kjósenda

Fulltrúar Besta flokksins buðu sig ekki fram til borgarstjórnar til þess að standa vörð um...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Ekki meira málþóf

Á næstu dögum kemur í ljós hvort Alþingi leggur nýja stjórnarskrá stjórnlagaráðs í þjóðara...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Hótel Godzilla

Nasa mun hætta starfsemi sinni 1. júní næstkomandi. Sá vondi draumur er að verða að verule...  

Meira
Aðsendar greinar 17. maí. 2012 06:00

Leitin að samræðugeninu

Eitt stærsta hlutverk stjórnmálanna er að viðhalda samræðu á milli þriggja mikilvægra þátt...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Til borgarfulltrúa Besta flokksins

Kæru borgarfulltrúar Besta flokksins. Þið buðuð ykkur fram undir því yfirskyni að gera Rey...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Björt framtíð

Öfugt við væntingar hafa mörg okkar, sem sóttum málþing á vegum Háskólans á Bifröst og Ney...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Fiskveiðifrumvörpin eru andstæð þjóðarhagsmunum

Svo ótrúlegt sem það er, þá er það engu að síður staðreynd, að verði frumvörp ríkisstjórna...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Enn um sæstreng

Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirk...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Tannpínusjúklingar nútímans

Undanfarin misseri hefur ástandið í tannheilsumálum þjóðarinnar verið til umræðu á opinber...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Vísindagreinar á mannamáli

Þó nokkur umfjöllun hefur átt sér stað í fjölmiðlum og í fræðasamfélaginu eftir að Magnús ...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Að varðveita sögu allra

Á síðustu áratugum hafa orðið miklar breytingar á íslensku þjóðfélagi og það hefur orðið á...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Á stjórnarandstaðan bara að halda kjafti og vera sæt?

Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifaði grein á dögunum þar sem hún kennir stjórnarandstöðu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Landspítali í Fossvog

Við sameiningu Sjúkrahúss Reykjavíkur og Landspítala í eina stofnun á árinu 2000 var farið...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Komum mynd á mannréttindi

Í dag 16. maí er mannréttindadagur Reykjavíkurborgar en þennan dag árið 2006 var mannrétti...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Skyldan til að tala saman

Síðustu misseri hef ég lesið margar greinar og hlustað á ljósvakamiðla og játa að mig setu...  

Meira
Aðsendar greinar 16. maí. 2012 06:00

Um "leppshlutverk“ forsetans

Eitt af markmiðum stjórnlagaráðs við gerð tillögu um nýja stjórnarskrá var að afnema "lepp...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 17:30

Stuðningsgrein: Lýðræði er alltaf svarið!

Þá er það komið á hreint – Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, er byrjaður...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Vinkonan í ESB

Stundum velti ég því fyrir mér af hverju ég búi á Íslandi. Einhvern veginn tekst aldrei að...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Ólína, berðu í borðið!

Ólína Þorvarðardóttir hefur verið einn öflugasti talsmaður þingsins fyrir breyttu fiskveið...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Til varnar heildrænum meðferðum

Sif Sigmarsdóttir hallmælir „óhefðbundnum lækningum” eða heildrænum meðferðum ...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

"Allt að“ ekki neitt

Sjaldan hafa valkostir neytenda verið jafn margir og nú þegar kemur að fjarskiptatengingum...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Má kaupa sér niðurstöðu?

Árið er 2012, rúmum þremur árum eftir hrun, og aldrei hefur ofríki sérhagsmunaaflanna í sa...  

Meira
Aðsendar greinar 15. maí. 2012 06:00

Hagur útgerðar og veiðigjald

Ríkisstjórn Samfylkingar og Vinstri Grænna lofaði því í samstarfsyfirlýsingu sinni árið 20...  

Meira
Aðsendar greinar 14. maí. 2012 09:14

Verðvernd er rökleysa

Verðvernd verslana er fullkomin rökleysa. Þeir sem auglýsa verðvernd bjóða nefnilega ekki ...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Við látum verkin tala

Það er fagnaðarefni á þriggja ára afmæli ríkisstjórnarinnar að meirihluti Alþingis skuli s...  

Meira
Aðsendar greinar 12. maí. 2012 06:00

Ágæti læknir, þiggur þú mútur?

Mánudagskvöldið 30. apríl fjallaði fréttaskýringaþátturinn „Spegillinn“ á RÚV ...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Aðsendar greinar / Bændasamtökin: ríki utan ríkisins?