Fótbolti

Avaldsnes á toppinn | Gunnhildur hetja Stabæk

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gunnhildur tryggði Stabæk öll stigin þrjú gegn Trondheims-Örn.
Gunnhildur tryggði Stabæk öll stigin þrjú gegn Trondheims-Örn. vísir/eyþór
Avaldsnes skaust á topp norsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta með 6-0 stórsigri á Uraedd á heimavelli í dag.

Hólmfríður Magnúsdóttir og Þórunn Helga Jónsdóttir léku allan leikinn fyrir Avaldsnes sem er með 31 stig á toppnum.

Lilleström getur reyndar endurheimt toppsætið með sigri á Klepp í leik sem nú stendur yfir.

Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir tryggði Stabæk 1-0 sigur á Trondheims-Orn en hún skoraði eina mark leiksins á 67. mínútu.

Þetta var þriðja mark Gunnhildar í sumar en Garðbæingurinn er á sínu öðru tímabili hjá Stabæk.

Stabæk er í 3. sæti deildarinnar með 25 stig, sex stigum á eftir toppliði Avaldsnes.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×