Handbolti

Auðveldur sigur hjá Aroni og félögum

Stefán Árni Pálsson skrifar
Aron Pálmarsson og félagar í Vezprém.
Aron Pálmarsson og félagar í Vezprém. vísir/epa
Veszprém vann góðan útisigur á Besiktas, 38-34, í Meistaradeild Evrópu í dag og var sigur þeirra í raun aldrei í hættu.

Staðan í hálfleik var 21-15 fyrir ungverska liðið en Aron Pálmarsson fór mikinn í leiknum. Hann skoraði fimm mörk og lék virkilega vel.

Veszprém er í öðru sæti A-riðils með 17 stig, aðeins einu stigi á eftir PSG. Besiktas er aftur á móti í því neðsta með tvö stig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×