Innlent

Auður: Hátterni Jóns Gnarr í ætt við einelti

Karen Kjartansdóttir skrifar
Auður Jónsdóttir.
Auður Jónsdóttir.

Hátterni borgarstjóra og félaga hans minnir á þá sem leggja í einelti í grunnskóla segir rithöfundurinn Auður Jónsdóttir eftir að hafa horft á myndbrot út kvikmyndinni Gnarr.

Auður segist sjá eftir því að hafa stutt Besta flokkinn eftir að hafa horft á tvö myndskeið úr heimildarmyndinni Gnarr. Þar birtist meðlimir Besta flokksins eins og vinsælir krakkar í grunnskóla sem leggi aðra í einelti og þaggi niður umræðu.

Bæði myndbrotin hafi mikið til gengið út á að gera grín að Sóleyju Tómasdóttur, fulltrúa Vinstri grænna, og látið hafi verið í ljós að Besta flokknum þyki hún alveg svakalega leiðinleg. Jón Gnarr er meðal annars sýndur ganga hlæjandi út af fundi þegar Sóley heldur ræðu en í myndskeiðinu segist hann reyndar ekki muna hvað hún heitir. Skömmu seinna talar hann um fundarhöld sem honum þykir stjarnfræðilega leiðinleg.

„Þetta eru hættulegar aðstæður sem Besti flokkurinn er í því þeir geta hæglega notað húmor sem þöggun, þetta eru atvinnuskemmtikraftar sem stór hluti þjóðarinnar dýrkar en þarna eru þeir komnir í pólitík og þar verða allir að þora að segja skoðanir sínar," segir Auður. Hún leggur áherslu á að Jón og félagar verði að sýna ábyrgð og bera virðingu fyrir skoðunum samstarfsmanna sinna. „Það þýðir ekki að segja að allir séu bara leiðinlegir."

Inni á sjónvarpssíðu Vísis má sjá umfjöllun Íslands í dag um myndina.

Auk þess má sjá myndbandið sem Auður vísar í hér en það vantaði inn í fréttina í gær.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×