Innlent

Áttu að greiða 160 þúsund fyrir flugmiða innanlands

Samúel Karl Ólason skrifar
Jóhanna Regína hætti við að kaupa flugmiðana fyrir móður sína, systur og dóttur hennar.
Jóhanna Regína hætti við að kaupa flugmiðana fyrir móður sína, systur og dóttur hennar.
Jóhanna Regína Aðalbjörnsdóttir ætlaði að kaupa miða fyrr í þessari viku fyrir innanlandsflug frá Þórshöfn til Reykjavíkur og til baka fyrir tvo fullorðna og eitt barn. Miðar þessir kostuðu 157.300 krónur með öllum gjöldum.

„Ég er í Reykjavík og ætlaði að fá mömmu, systur mína og dóttur hennar í heimsókn yfir helgina, en ég hætti við. Þetta er fáránlegt verð fyrir tvo fullorðna og eitt fjögurra ára barn,“ segir Jóhanna í samtali við Vísi. Ef sama pöntun er gerð með mánaðarfyrirvara kostar flugið 132.300 krónur.

Þó flaug Jóhanna til Reykjavíkur fyrir nokkru og þá var ódýrara að fljúga frá Þórshöfn en frá Akureyri. Í flugi á milli Reykjavíkur og Þórshafnar er millilent á Akureyri. „Þá lenti ég á einhverju nettilboði þar sem önnur leið kostaði, að mig minnir, um 15.000 krónur.“

Þegar Jóhanna flaug suður nýlega keyrði maður hennar frá Þórshöfn til Reykjavíkur. „Sú bílferð kostaði um 12.000 krónur, en það komast fimm í bílinn.“

„Mér finnst þetta alveg út í hött. Að skoða þetta á mánudegi fyrir flug á föstudegi og það kostar 160.000 krónur. Það hefur enginn efni á þessu, að skreppa til Reykjavíkur yfir helgi fyrir jól,“ segir Jóhanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×