Innlent

Átta vitni gefið skýrslu fyrir dómi í mansalsmálinu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Húsið þar sem konurnar munu hafa starfað og búið.
Húsið þar sem konurnar munu hafa starfað og búið. Vísir/Þórhildur
Rannsókn á meintu mansali í Vík í Mýrdal miðar vel að sögn lögreglunnar á Suðurlandi. Þegar hafa átta vitni gefið skýrslu fyrir dómi. Öll höfðu þau verið í vinnu hjá Vonta International, undirverktaka Icewear. Enn er eftir að yfirheyra nokkur vitni.

Þorgrímur Óli Sigurðsson, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi sem fer fyrir rannsókn málsins, segir við Vísi að það fólkið hafi verið látið gefa skýrslu fyrir dómi til að einfalda hlutina.

„Það er ekki oft sem þetta er gert en þá er viðkomandi búinn að staðfesta frásögn sína fyrir dómi.“

Aðspurður hvort óttast hafi verið að fólk gæti breytt framburði sínum fyrir dómi vegna utanaðkomandi pressu vill Þorgrímur ekki tjá sig um það. Hins vegar snúi vandamálið líka að því að túlka þurfi að kalla til en bæði maðurinn sem situr í gæsluvarðhaldi, og konurnar þrjár sem taldar eru fórnarlömb í málinu, eru frá Srí Lanka.

Icewear keypti prjónaverksmiðjuna Víkurprjón í Vík í Mýrdal árið 2012. Vonta International var undirverktaki Icewear.Vísir/Þórhildur
Líklegt að farið verði fram á lengra gæsluvarðhald

Til aðstoðar við rannsóknina er mansalssérfræðingur og fjármunabrotadeild lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, alþjóðadeild ríkislögreglustjóra, Europol, skattrannsóknarstjóri og ríkisskattstjóri. Svo virðist sem málið sé í algjörum forgangi hjá lögrelgunni á Suðurlandi.

„Það er stöðug vinna í þessu og ekkert tekið frá því. Við erum með þessa tímapressu,“ segir Þogrímur og vísar til þess að gæsluvarðhald yfir manninum rennur út á föstudag. „Við getum ekki leyft okkur annað en að vinna stöðugt í málinu.“

Sjá einnig:Fengu fyrirmæli um að hleypa tökumanni ekki inn

Auk yfirheyrslna er verið að afla gagna og vinna úr þeim. Rannsóknaráætlanir eru yfirfarnar á hverjum degi. Ekkert liggur fyrir um lok rannsóknarinnar.

Þorgrímur segir allt eins líklegt að farið verði fram á framlengingu á gæsluvarðhaldi yfir manninum sem nú dvelur á Litla-Hrauni. Það verði að koma í ljós á fimmtudaginn hvort af því verði.

Aðspurður hvort forsvarsmenn Icewear hafi verið yfirheyrðir vildi Þorgrímur Óli ekki tjá sig um það. Hann sagði að enn ætti eftir að yfirheyra nokkra aðila vegna málsins.


Tengdar fréttir

Rannsaka mansal af krafti

"Allur kraftur okkar er í þessari rannsókn og við njótum aðstoðar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Það er verið að taka skýrslur og afla gagna og rannsóknin er í fullum gangi,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á Suðurlandi, um framvinduna á rannsókn á meintu mansali í Vík í Mýrdal.

Þrír þolendur í mansali í Vík

Ein kona til viðbótar er talin þolandi í mansalsmálinu í Vík í Mýrdal. Hún nýtur nú verndar eins og konurnar tvær sem var komið í skjól í aðgerðum lögreglu á fimmtudag fyrir viku. Konan er líka frá Srí Lanka.

Konurnar unnu í kjallaranum

Maðurinn sem var handtekinn stýrði fyrirtæki sem er verktaki hjá Drífu/Icewear.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×