Handbolti

Atli Ævar skoraði fjögur í stórsigri Guif

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Atli Ævar Ingólfsson í leik með Guif.
Atli Ævar Ingólfsson í leik með Guif. mynd/guif
Lærisveinar KristjánsAndréssonar í Guif frá Eskilstuna unnu stórsigur á Lugi, 41-25, í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Guif var sjö mörkum yfir í hálfleik, 20-13, og hélt áfram að bæta við forskot sitt þar til yfir lauk. Sigurinn vægast sagt sannfærandi, en Lugi er í öðru sæti deildarinnar.

Atli Ævar Ingófsson skoraði fjögur mörk fyrir heimamenn í kvöld, en Aron Rafn Eðvarðsson sat mest megnis á bekknum. Hann fékk á sig eitt mark úr víti.

Guif komst með sigrinum upp sjöunda sæti sænsku úrvalsdeildarinnar með sigrinum, en liðið er með átta stig eftir átta leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×