Ástir og örlög í amerískum stíl

Gagnrýni
Fréttablaðið Gagnrýni 19. janúar 2012 09:00
Carpe Diem.
Carpe Diem.
Þórunn Hrefna Sigurjónsdóttir skrifar:
Bækur. Carpe Diem. Eyrún Ýr Tryggvadóttir og Kristjana María Kristjánsdóttir. Salka 2011.

Birna Bjarkadóttir er aðalpersóna unglingasögunnar Carpe diem. Hún er í tíunda bekk, en á fremur erfitt uppdráttar, þar sem hún er nýbyrjuð í skólanum og fellur ekki allt of vel í kramið hjá skólafélögunum í fyrstu. Þó takast fljótlega ástir með Birnu og Hallgrími, góðum strák sem stundar íþróttir, leikur á gítar og er í alla staði til fyrirmyndar.

Heima við eru vandræði Birnu jafnvel enn alvarlegri, þar sem móðir hennar er drykkfelld og sjálfselsk og hugsar lítið um hag dótturinnar, en faðirinn er fjarverandi. Til allrar hamingju á Birna góða ömmu, sem reynir að bæta ástandið og vera henni sú stoð sem hún þarf á að halda.

Víst er nauðsynlegt að unglingar fái að lesa um ástir og erfiðleika jafnaldra sinna. Því miður eru þó allar pælingar í þessari bók fremur grunnar og engu líkara en að höfundunum liggi gríðarmikið á að klára söguna og hlaupi því yfir flesta atburði á hundavaði.

Tilraun er til dæmis gerð til þess að fjalla um kynferðislega áreitni í garð söguhetjunnar, en þegar nýr kærasti hinnar drykkfelldu móður hittir Birnu í fyrsta skipti er hann vart kominn inn úr dyrunum þegar hann fer að káfa á henni með „skítugum krumlunum“ (og já, hann er fullur, talar með smeðjulegri röddu og hefur glæpsamlegt augnaráð). Ekki skal gert lítið úr slíkum atburðum, en hér er fullyrt fljótlega eftir káfið að „það hafi skilið eftir sig djúp ör í sálu hennar sem áttu seint eftir að gróa“. (75)

Allt dramað og ég leyfi mér að segja sorgarklámið sem fylgir í kjölfarið er hreinlega of illa undirbyggt til þess að það nái að vekja samúð eða hreyfa við lesanda.

Klisjur úr amerískum kvikmyndum eru mjög margar og áberandi í þessari bók. Nútímatækni á borð við sms-skilaboð gleymist til dæmis skyndilega þegar aðalpersónan þarf að ná athygli kærastans og kastar smásteinum í gluggann hjá honum að næturlagi.

Hrekkjavökuball með viðeigandi búningum er haldið í skólanum og þurfa unglingarnir líka að búa sig undir skóladansleik; eins konar „prom“ þar sem herrann kemur (vitaskuld í jakkafötum með bindi) og sækir dömuna, en nauðsynlegt er að hún hugi að hári og förðun og kaupi sér flottan kjól fyrir ballið. Engum lesanda kemur því á óvart þegar amman í sögunni leiðir Birnu inn í herbergi og tekur fram undurfallega skartgripi sem hún hefur átt síðan hún var ung og gefur barnabarni sínu fyrir þennan mikilvæga áfanga.

Raunar má segja það Carpe diem til hróss að höfundar gera ráð fyrir því að unglingar hugsi um kynlíf, en slíkt hef ég ekki rekið mig á í þeim unglingabókum sem ég hef lesið síðustu mánuði. Umfjöllunin um það er engu að síður klisjukennd í takt við allt hitt; Birna og Hallgrímur ætla sko að bíða þar til þau eru tilbúin (og allt bendir til þess að þau muni láta til skarar skríða eftir ballið mikla…).

Annar kostur sögunnar er sá að málfar unglinganna með tilheyrandi ómægod-i, sjitti og fokki er sannfærandi, þó að stíllinn sé æði rislítill.

Niðurstaða: Ófrumleg unglingabók, einkum byggð á klisjum úr amerískum kvikmyndum. Engu líkara en að höfundunum liggi gríðarmikið á að klára söguna og hlaupi því yfir flesta atburði á hundavaði.

Fleiri fréttir - Gagnrýni

Gagnrýni 23. maí. 2012 20:00

Innan þægindarammans

Dark Shadows er nokkuð góð skemmtun sem skrifast að stórum hluta á Johnny Depp. Leikstjóri...  

Meira
Gagnrýni 23. maí. 2012 10:00

Gengu af göflunum

Algerlega frábærir tónleikar. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur hafi orðið fyrir vonbrigðu...  

Meira
Gagnrýni 21. maí. 2012 10:00

Starað í poppið

Hvað fór úrskeiðis hjá þessum hæfileikaríka grínara? Borat var ósmekkleg frá upphafi til e...  

Meira
Gagnrýni 16. maí. 2012 11:00

Norah prófar eitthvað nýtt

Þokkalegasta plata sem aðdáendur Noruh Jones ættu að vera sáttir við. Danger Mouse býr til...  

Meira
Gagnrýni 11. maí. 2012 15:00

Út um þúfur

Aðdáendur Mel Gibson eiga betra skilið. Það er orðið svo skrambi erfitt að halda upp á han...  

Meira
Gagnrýni 10. maí. 2012 14:30

Endurvinnslukóngurinn

Jack White með eina af plötum ársins. Blunderbuss er lítið meistaraverk; þrettán lög, hver...  

Meira
Gagnrýni 09. maí. 2012 12:30

Barist í blokk

Það er ekki á hverjum degi sem indónesískar hasarmyndir rata í íslensk kvikmyndahús. En ek...  

Meira
Gagnrýni 08. maí. 2012 11:00

Fersk og óvænt plata

Nýjasta hljómsveitin hans Krumma með frábæra plötu. Hún kemur fersk inn í íslenska tónlist...  

Meira
Gagnrýni 03. maí. 2012 11:00

Bubbi í toppformi

Þorpið er, ef mér skjátlast ekki, 26. plata Bubba með nýju efni. Það eru ótrúleg afköst. O...  

Meira
Gagnrýni 02. maí. 2012 11:15

Leikræn og lipur fengitíð

Svar við bréfi Helgu er góð sýning með skýrri persónusköpun. Leikgerðin er mjög spennandi....  

Meira
Gagnrýni 01. maí. 2012 15:00

Árshátíð ofurhetja

The Avengers er alvöru árshátíð. Mikið hlegið og allir í sínu fínasta pússi. Hulk var þó v...  

Meira
Gagnrýni 20. apr. 2012 13:00

Skálkar á skólabekk

Mátulegur skammtur af formúluskopi. Allt gott og blessað. Þessi ágæti grínhasar krefst eng...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 21:00

Rokkaður gospelblús

Blússveit Þóllýjar er skipuð söngkonunni Þollý Rósmunds, gítarleikaranum Magnúsi Axel Hans...  

Meira
Gagnrýni 18. apr. 2012 15:00

Rokk og ról

Fyndin og fjörug brelluveisla. Og hávaðinn er ægilegur. Battleship veit hvað hún vill vera...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 20:00

Fram og aftur morðgátuna

Vel byggður og spennandi krimmi með ótrúlegu fléttumunstri og vel skrifuðum persónum. Nesb...  

Meira
Gagnrýni 13. apr. 2012 12:30

Vessa- og vandræðahúmor

Fortíðardaðrið er töluvert og aðdáendur myndanna geta eflaust skemmt sér sæmilega yfir Ame...  

Meira
Gagnrýni 12. apr. 2012 14:00

Vel útfært og kraftmikið

Muck stimplar sig inn með pottþéttri rokkplötu, lagasmíðarnar eru fínar, flutningur þéttur...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 20:00

Farsaskrímslið snýr aftur

Tveir 11 ára piltar lumbra hvor á öðrum og tennur hljóta skaða af. Foreldrar drengjanna hi...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 09:00

Hress skilnaðarplata frá drottningu poppsins

MDNA er tólfta plata Madonnu og sú fyrsta síðan Hard Candy kom út fyrir fjórum árum. Þetta...  

Meira
Gagnrýni 11. apr. 2012 08:00

Perlan skín enn

Það er gaman að fá þessa perlu aftur í bíó. Hún fjallar um atburði sem áttu sér stað í upp...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 14:00

Falleg sýning um föðurleit

Saga Magneu, tengdamóður höfundarins Vals Freys Einarssonar og móður leikmynda- og búninga...  

Meira
Gagnrýni 10. apr. 2012 10:00

Tilkomumikil hávaðamessa

AMFJ er listamannsnafn Aðalsteins Jörundssonar. Hann hefur vakið athygli undanfarin ár fyr...  

Meira
Gagnrýni 02. apr. 2012 17:00

Björk hittir Áhöfnina á Halastjörnunni

Karl Olgeirs, Jón Rafns og Kristinn Snær djassa upp íslensk popplög úr ólíkum áttum. Eins ...  

Meira
Gagnrýni 29. mar. 2012 14:30

Þetta er ungt og leikur sér

Þessi risastóra mynd er byggð á vinsælli skáldsögu eftir Suzanne Collins og gerist í ótilg...  

Meira
Gagnrýni 27. mar. 2012 12:00

Meðalmennska á Manhattan

Leikararnir halda myndinni á floti. Þá er umhverfið notað á skemmtilegan máta og ætti að k...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Gagnrýni / Ástir og örlög í amerískum stíl