Handbolti

Ásgeir Örn: Verður jafn gaman fyrir Gumma að vinna okkur

Arnar Björnsson í Doha skrifar
Ásgeir Örn Hallgrímsson er einn margra leikmanna sem þekkir vel til í danska landsliðinu.  Hann lék þar m.a. með tveimur af bestu mönnum þeirra; Mikkel Hansen og Nickals Landin. Ísland og Danmörk mætast í 16 liða úrslitum í kvöld klukkan 18.00.

„Mér finnst æðislegt að spila gegn Dönum.  Þessir leikir hafa í gegnum tíðina alltaf verið hörkuleikir eins og leikurinn sem við spiluðum við þá skömmu fyrir mótið.  Svo er auðvitað miklu skemmtilegra að Gummi sé að þjálfa þá.  Mér finnst það gera „dýnamíkina“ við leikinn ennþá meiri og skemmtilegri“

Ykkur myndi væntanlega ekki leiðast að þið létuð Gumma fá hausverk? „Nei en honum finnst örugglega jafn gaman að vinna okkur og okkur myndi finnast til að vinna hann.  Eins og ég sé Danina að þá eru þrír stórir póstar sem við þurfum að passa.“

„Mikkel Hansen heldur sókninni á floti og í vörninni er Rene Toft sá sem bindur þetta meira og minna saman, er stór og mikill nagli sem gefur ekkert eftir.  Fyrir aftan hann er Niklas Landin frábær í markinu.  Við þurfum að hugsa töluvert um þessa þrjá leikmenn og eiga svör við þessum leikmönnum.“

Landin varði mjög vel í síðasta leik gegn Pólverjum og það var kannski honum að þakka að Danir náðu frumkvæðinu strax í byrjun.

    

„Hann er frábær markmaður en hann á ekkert alltaf góðan leik og við þurfum að sjá til þess að gegn okkur eigi hann ekki sinn besta dag.  Mikkel Hansen er líklega besti félagi minn í danska liðinu.  Við vorum saman í tvö ár og þar áður í GOG.  Landin var með mér hjá GOG.  Þetta eru allt ágætis vinir mínír og góðir og skemmtilegir.   Það er ennþá sætara að vinna þá ef maður þekkir þá.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×