Klúður hjá Liverpool gegn Sunderland | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. febrúar 2016 17:00 Defoe fagnar jöfnunarmarki sínu. Vísir/Getty
Liverpool fór illa að ráði sínu þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Sunderland á Anfield Road í dag.Mörkin úr leiknum má sjá hér að neðan.Jürgen Klopp gat ekki stýrt Liverpool í dag vegna botnlangabólgu. Hans menn glutruðu niður tveggja marka forystu á síðustu átta mínútum leiksins og þurftu því að sjá á eftir tveimur stigum. Roberto Firmino kom Liverpool yfir eftir klukkutíma leik með skalla eftir frábæra fyrirgjöf James Milner. Þetta var fimmta mark Brasilíumannsins á árinu 2016 en hann hefur verið sjóðheitur að undanförnu. Firmino var ekki hættur því hann lagði upp seinna mark Liverpool fyrir Adam Lallana á 70. mínútu. Heimamenn virtust ætla að sigla sigrinum örugglega í höfn en Adam Johnsen hleypti spennu í leikinn þegar hann skoraði með skoti beint úr aukaspyrnu á 82. mínútu. Skotið var gott en Simon Mignolet hefði líklega átt að gera betur í marki Liverpool. Það var svo Jermain Defoe sem tryggði Sunderland stig með fallegu marki mínútu fyrir leikslok. Liverpool er í 8. sæti deildarinnar með 35 stig en liðið hefur aðeins unnið einn af síðustu fimm deildarleikjum sínum. Sunderland er enn í 19. og næstneðsta sæti deildarinnar, nú með 20 stig.Liverpool 1-0 Sunderland Liverpool 2-0 Sunderland Liverpool 2-1 Sunderland Liverpool 2-2 Sunderland
Enski boltinn Mest lesið Húbba Búbba kippt af dagskrá: „Það eina sem ég spila í Víkinni er fótbolti“ Íslenski boltinn „Ég á Íslandi líf mitt að þakka“ Íslenski boltinn Raya hetjan er Skytturnar lögðu rútunni í Bergamo Fótbolti Uppgjörið: FH - ÍBV 33-30 | Góður kafli í fyrri hálfleik skilaði sigri FH-inga Handbolti Framarar flæktir í óskýrum reglum HSÍ: „Þetta er alveg galið dæmi“ Handbolti Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Enski boltinn Eftirsjá Gary Martin: „Mín skoðun, fólk mun ekki vera sammála henni“ Íslenski boltinn Trompaðist eftir misheppnaða hælsendingu í dauðafæri: „Nei! Nei! Nei!“ Fótbolti „Djúpir dalir en þú kemst upp úr þeim“ Sport Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Enski boltinn Fleiri fréttir Með tvær ferðatöskur af fíkniefnum Hafi snúist hugur og vilji nú fara til Liverpool Segir að hann myndi kýla netníðingana í nefið ef þeir stæðu fyrir framan hann Arteta með vondar fréttir af meiðslum Ødegaards Óviss um að hann sé velkominn á Oasis tónleikana Ten Hag rólegur þrátt fyrir fullkomið kvöld Lið Stefáns skoraði úr sextán vítum Auðvelt á Old Trafford gegn C-deildarliðinu Ten Hag aðvarar Antony: „Verður að vinna sér inn réttinn til að spila“ Liverpool birtir áður óséð efni frá Reykjavík: „Beið í sextíu ár eftir því að sjá þetta“ „Þú færð mikið borgað svo þú mátt ekki sýna tilfinningar“ Willum Þór og félagar lögðu Hollywood-lið Wrexham Höjlund enn fjarri góðu gamni en varnarþríeykið klárt í slaginn Englandsmeistarinn Ingle með slitið krossband Fannst mark Gabriels vera ólöglegt Kærir Richarlison og sakar hann um illa meðferð Segist eiga meiri möguleika á að vinna dansþátt en Spurs að vinna titil „Arsenal spilaði eins og meistaralið“ Arteta ánægður með þroskaða frammistöðu í fjarveru lykilmanna Tvö glæsimörk skoruð í endurkomusigri Newcastle Gabriel hetjan hjá vængbrotnu liði Arsenal í nágrannaslagnum Anthony Taylor dómari sló met í gær UEFA hótar því að reka enska landsliðið af þeirra eigin EM Will Ferrell fylgdist með Leeds í fyrsta sinn Enginn varamaður skorað jafn mörg sigurmörk: „Getur orðið einn besti framherji heims“ Aston Villa með ævintýralega endurkomu gegn Everton Nkunku tryggði sigur eftir stoðsendingu Sancho „Margir sem sýndu ekki sína bestu frammistöðu í dag“ Jason Daði lagði upp mark en það dugði ekki Haaland náði ekki þrennunni en tryggði sigurinn Sjá meira