Það þarf að fjárfesta í landsliðinu

Fréttablaðið Handbolti 27. janúar 2012 08:00
Guðmundur Guðmundsson.
Guðmundur Guðmundsson. Mynd/Vilhelm
Henry Birgir Gunnarsson í Novi Sad skrifar:
Skrautlegu Evrópumóti í handknattleik er lokið hjá íslenska landsliðinu og líkt og svo oft áður skiptust á skin og skúrir hjá strákunum okkar. Liðið varð fyrir gríðarlegu áfalli fyrir mót þegar ljóst varð að þeir Ólafur Stefánsson og Snorri Steinn Guðjónsson myndu ekki taka þátt. Svo meiðast Alexander Petersson og Ingimundur Ingimundarson. Þetta eru allt lykilmenn og ekki mörg lið sem myndu höndla það að missa svo stóra bita úr sínu liði.
Ef mið er tekið af þessum áföllum þá er árangur strákanna okkar í Serbíu magnaður og þeir komu ansi mörgum á óvart með vasklegum leik. Það hefði ekki mikið þurft að falla með þeim til þess að liðið hefði farið enn lengra og jafnvel blandað sér í slaginn um undanúrslitasæti.

„Ef ég geri upp mótið þá er ég auðvitað svekktur að hafa ekki komist með nein stig í milliriðilinn. Mér fannst við vera með mjög góða stöðu. Burtséð frá því þá hefði ég viljað fá vörn og markvörslu fyrr í gang hjá okkur. Það fellir okkur að þessu sinni," segir Guðmundur þegar hann er beðinn um að greina hvað vantaði upp á.
Hann tók þá ákvörðun að senda Hreiðar Levý Guðmundsson markvörð heim á kostnað nýliðans Arons Rafns Eðvarðssonar og menn spyrja sig að því hvort landsliðsferli Hreiðars sé lokið?

„Það var erfið ákvörðun fyrir mig að senda Hreiðar heim því hann hefur oft bjargað okkur í erfiðum stöðum. Ég mun aldrei gleyma leiknum sem hann átti gegn Svíum þegar við tryggðum okkur inn á Ólympíuleikana árið 2008. Þar átti hann stórkostlegan leik og hann hefur átt fleiri góðar innkomur og við gleymum þeim ekki," sagði Guðmundur sem fagnar samkeppni um markvarðastöðurnar.

„Ég met stöðuna þannig í dag að við eigum þrjá frábæra markverði og það er mjög jákvætt. Það er gott að hafa getað bætt Aroni við og fínt að það sé samkeppni. Hreiðar verður að sjálfsögðu áfram í myndinni og landsliðsferli hans er ekkert lokið."


Það þarf að fjárfesta í landsliðinu
Mynd/Vilhelm
Lítið vantaði upp á
Þónokkrir nýliðar fengu tækifæri í Serbíu og nýttu allir sín tækifæri vel. Er breiddin í íslenska landsliðinu að aukast?

„Já, hún er að aukast að vissu leyti. Við eigum auðvitað menn inni. Það má ekki gleyma því að við vorum án Alexanders Petersson allan milliriðilinn. Við vorum líka án eins besta varnarmanns liðsins, eins besta hraðaupphlaupsmannsins og eins besta sóknarmannsins. Við náum samt mjög fínum úrslitum og mér finnst margt jákvætt við það sem við vorum að gera á þessu móti," segir þjálfarinn en ekki vantaði mikið upp á að liðið færi enn lengra á þessu móti.

„Ef markvarslan hefði verið betri í riðlinum þá hefðum við farið mjög langt í þessum milliriðli. Ég trúi því staðfastlega. Við töpum fyrir Króötum með tveim mörkum og leiðum í 56 mínútur. Ein varsla í hvorum hálfleiknum hefði getað riðið baggamuninn. Svona lítið vantaði upp á og ef við hefðum fengið markvörslu í Slóvenaleiknum hefði staðan orðið önnur. Þarna sitjum við eftir með sárt ennið. Varnarleikurinn var ekki eins góður og við viljum hafa hann en hann fór batnandi."

Það var afar áhugavert hversu vel sóknarleikurinn gekk á mótinu í ljósi þess að hvorki Ólafur Stefánsson né Snorri Steinn Guðjónsson voru með liðinu. Þeir hafa borið uppi sóknarleik landsliðsins að mestu leyti á undanförnum árum.

„Landsliðið hefur ekki í langan tíma spilað eins góðan sóknarleik heilt yfir og á þessu móti. Það er frábært. Það hefur margt háð liðinu en ég get ekki annað en klappað strákunum á bakið," segir Guðmundur en það leynir sér ekki að hann er stoltur af strákunum sínum.

„Leikmenn eru að nýta sinn frítíma til að spila á stórmótum. Það er ekki sjálfgefið og þess vegna er ég svo þakklátur. Mér finnst líka að þjóðin eigi að vera þakklát leikmönnunum sínum sem eru að fórna sér. Þeir gera þetta líka ótrúlega faglega þessir strákar og eru atvinnumenn fram í fingurgóma. Það gerir það líka þess virði að standa í þessu. Menn skulu líka ekki gleyma því að það er ekki sjálfgefið að þetta haldi áfram svona endalaust," segir Guðmundur en hann er á meðal þeirra sem finnst dapurlegt hversu lítið er stutt við bakið á íslenska landsliðinu sem hefur borið hróður Íslands víða á síðustu árum.


Það þarf að fjárfesta í landsliðinu
Mynd/Vilhelm
Þjóðin vill árangur
„Menn verða að átta sig á því að ef þeir vilja eiga gott landslið þá þarf að fjárfesta í því. Allt annað er ekki mögulegt. Það er meira og minna allt undir á hverju móti. Það liggur stundum nánast þannig að ef við komumst ekki inn á næsta stórmót þá þurfi að loka HSÍ.

Það liggur við að þetta sé þannig og hefur stundum verið. Íslenska þjóðin vill árangur og er oft stolt af þessu liði. Menn verða líka að fara að gera upp við sig hvort þeir vilji virkilega eiga svona heimsklassalið eða ætla menn bara að slá sér á brjóst á mannamótum þegar landsliðið hefur staðið sig vel? Ég vil sjá meiri fjárfestingu inn í þetta lið ef menn á annað borð vilja eiga það," segir Guðmundur en strákarnir okkar fá aldrei neinar greiðslur fyrir þátttöku sína með landsliðinu.

Landsliðsmenn annarra þjóða skilja það ekki og hafa margoft sagt við þá að þeir myndu ekki nenna þessu ef þeir fengju ekki almennilega greitt.


Það þarf að fjárfesta í landsliðinu
Mynd/Vilhelm
Þarf að fækka stórmótum
„Það er ómæld og endalaus vinna sem þessir strákar leggja á sig og þeir eiga ekkert nema hrós skilið fyrir það. Þeir eiga alla mína virðingu fyrir það sem þeir leggja á sig þessir drengir. Mér finnst þeir alveg frábærir."

Það kom margt á óvart á þessu EM. Meðal annars að liðin sem léku til úrslita á HM fyrir ári – Frakkland og Danmörk – fóru stigalaus í milliriðli. Eins fór hjá íslenska liðinu.

Mikil umræða hefur verið um álag handboltamanna á síðustu árum. Það er að minnsta kosti eitt stórmót á ári ofan í erfiðar deildarkeppnir um allan heim og þetta mikla álag virðist vera að bíta sum liðin í afturendann.

„Það háir okkur meira en mörgum liðum því við erum ekki með eins marga háklassaleikmenn og þessi sterkustu lið. Við erum hægt og sígandi að reyna að nálgast þau en höfum ekki sömu breiddina og bestu liðin í dag. Við lentum svo í því núna að þurfa að fylla stór skörð og mér fannst við gera það mjög vel. Álagið er auðvitað gríðarlegt á öllum þessum leikmönnum. Mér persónulega finnst að það þurfi að fækka þessum stórmótum og hafa lengra á milli þeirra. Ég myndi vilja sjá að minnsta kosti þrjú ár á milli HM því þetta er rosalegt álag."

Fleiri fréttir - Handbolti

Handbolti 23. feb. 2012 06:00

Alfreð náði yfirhöndinni í einvíginu gegn Guðmundi

Kiel vann nokkuð þægilegan sigur á Rhein-Neckar Löwen í stórslag liðanna í þýsku úrvalsdei...  

Meira
Handbolti 22. feb. 2012 22:23

Füchse Berlin hafði betur gegn Kára Kristjáni og félögum

Kári Kristján Kristjánsson skoraði sex mörk fyrir Wetzlar gegn Füchse Berlin í kvöld en þa...  

Meira
Handbolti 22. feb. 2012 20:58

Aðeins eitt íslenskt mark í sigri AG

Arnór Atlason var eini Íslendingurinn sem komst á blað í öruggum sigri AG Kaupmannahafnar ...  

Meira
Handbolti 22. feb. 2012 19:56

Alfreð fór létt með Guðmund | 21. sigur Kiel

Kiel sýndi enn og aftur yfirburði sína í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld er liðið vann auðve...  

Meira
Handbolti 22. feb. 2012 17:30

Aron Pálmarsson ræddi um handbolta og Chelsea í Boltanum á X-inu 977

Aron Pálmarsson, landsliðsmaður í handknattleik, var í viðtali í Boltanum á X-inu 977 við ...  

Meira
Handbolti 21. feb. 2012 20:51

Stórt tap hjá Team Tvis í Danmörku

Þórey Rósa Stefánsdóttir og Rut Jónsdóttir komust báðar á blað þegar að lið þeirra, Team T...  

Meira
Handbolti 21. feb. 2012 18:15

Íslenska landsliðið fimmta besta í Evrópu

Ísland verður í efsta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í undankeppni EM 2014 í...  

Meira
Handbolti 21. feb. 2012 13:15

Guðjón Valur í liði umferðinnar í Meistaradeildinni

Guðjón Valur Sigurðsson var valinn í lið umferðarinnar í Meistaradeildinni í handbolta en ...  

Meira
Handbolti 20. feb. 2012 07:00

Iðjuleysi myndi gera út af við mig

Björgvin Páll Gústavsson, landsliðsmarkvörður í handbolta, stendur í ströngu þessa dagana....  

Meira
Handbolti 19. feb. 2012 19:12

Úrslitaleikur á milli Kiel og AG um næstu helgi

Kiel hrifsaði toppsætið í D-riðli Meistaradeildarinnar af AG í kvöld með afar sannfærandi ...  

Meira
Handbolti 19. feb. 2012 17:31

AG vann góðan útisigur á Karabatic og félögum

Danska ofurliðið AG komst í efsta sæti D-riðils Meistaradeildarinnar með frábærum útisigri...  

Meira
Handbolti 19. feb. 2012 16:13

Þórir og félagar komust upp fyrir Füchse Berlin

Lið Þóris Ólafssonar, Kielce, komst í annað sæti B-riðlis Meistaradeildarinnar með sigri á...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 21:45

Björgvin Páll frábær er Magdeburg komst áfram á ævintýralegan hátt

Björgvin Páll Gústavsson og félagar í Magdeburg eru komnir áfram í EHF-bikarnum eftir ævin...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 19:56

Löwen áfram eftir hörkuleik gegn GUIF

Rhein-Neckar Löwen er komið áfram í EHF-bikarnum eftir þriggja marka sigur, 39-36, á sænsk...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 19:43

Tap hjá Sverre og félögum

Sverre Andreas Jakobsson og félagar í þýska handboltaliðinu Grosswallstadt urðu að sætta s...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 18:23

N1-deild kvenna: Auðvelt hjá Fram á Akureyri

Fram og Valur eru jöfn að stigum í N1-deild kvenna eftir öruggan átta marka sigur Fram á K...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 15:46

N1-deild kvenna: ÍBV í þriðja sætið | Auðvelt hjá Val

Tveimur leikjum af þremur í N1-deild kvenna í dag er lokið. Valur og ÍBV unnu bæði góða s...  

Meira
Handbolti 18. feb. 2012 08:00

Engin aðgerð og Alexander spilar innan fjögurra vikna

Þrátt fyrir að Alexander Petersson sé nú að glíma við þrálát og erfið meiðsli í öxl eru fo...  

Meira
Handbolti 17. feb. 2012 22:16

Sólveig Lára skoraði fimmtán mörk

Sólveig Lára Kjærnested skoraði fimmtán mörk í kvöld þegar Stjarnan vann 38-24 sigur á FH ...  

Meira
Handbolti 17. feb. 2012 21:30

Snorri Steinn: Titlarnir vinnast ekki á háttvísi

Snorri Steinn Guðjónsson hefur staðið í ströngu síðustu daga eftir að hann var rekinn útaf...  

Meira
Handbolti 17. feb. 2012 20:34

Kári og félagar með góðan en sjaldséðan útisigur

Kári Kristjánsson og félagar hans í HSG Wetzlar unnu fjögurra marka útisigur á Hüttenberg,...  

Meira
Handbolti 17. feb. 2012 18:26

Snorri Steinn dæmdur í tveggja leikja bann

Snorri Steinn Guðjónsson verður ekki með AG Kaupmannahöfn í tveimur næstu deildarleikjum l...  

Meira
Handbolti 17. feb. 2012 06:00

Aron Kristjáns: Malovic hefur gjörsamlega misst sjálfstraustið

Nemanja Malovic, hægri skytta karlaliðs Hauka í handknattleik, hefur átt afar erfitt uppdr...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 22:39

Akureyringar komnir inn á topp fjögur - myndir

Akureyringar unnu sinn annan sigur á Nesinu á einni viku þegar þeir lögðu botnlið Gróttu 2...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 22:37

Haukar unnu auðveldan sigur í generalprufunni - myndir

Haukar unnu öruggan sex marka sigur á Fram í N1 deild karla í kvöld, 23-17, og enduðu um l...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 21:39

Umfjöllun og viðtöl: Fram - Haukar 17-23

Haukar unnu öruggan sigur á Fram í Safamýri 23-17 í leik sem einkenndist af vandræðalegum ...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 21:27

Umfjöllun og viðtöl: HK - Valur 24-28

Valur vann gríðarlega mikilvægan sigur, 28-24, gegn HK í N1-deild karla í Digranesinu í kv...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 20:09

Umfjöllun og viðtöl: Grótta - Akureyri 25-29

Akureyri vann í kvöld góðan fjögurra marka sigur, 25-29 á botnliði Gróttu í N1-deildinni á...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 21:44

FH-ingar áfram stigi á eftir Haukum | Unnu Aftureldingu naumt

FH-ingar unnu 26-25 sigur á Aftureldingu í N1 deild karla í handbolta í kvöld og eru áfram...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 15:45

Stuðningsmenn Magdeburgar hafa sterkar taugar til Íslands

Blaðamaður Vísis hitti á þessa tvo stuðningsmenn þýska úrvalsdeildarfélagsins Magdeburg se...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 13:45

Hefði verið mikil synd að missa Dag

Thomas er gallharður stuðningsmaður Füchse Berlin og var að sjálfsögðu í Max-Schmeling-höl...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 12:30

Guðjón og Snorri flottir með nýju greiðslurnar

Eins og fram kom á Vísi í gær þá töpuðu þeir Guðjón Valur Sigurðsson og Snorri Steinn Guðj...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 11:30

Mögnuð stemning og glæsileg umgjörð á heimaleikjum Füchse Berlin

Tæplega níu þúsund manns voru á leik Füchse Berlin og Magdeburg í þýsku úrvalsdeildinni í ...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 08:00

Enn mikil óvissa um öxlina hans Alexanders

Alexander Petersson segir að axlarmeiðsli sín geri það að verkum að ómögulegt sé að segja ...  

Meira
Handbolti 16. feb. 2012 07:00

Alexander: Dagur er ótrúlega yfirvegaður

Alexander Petersson segir það gott að spila fyrir þjálfara eins og Dag Sigurðsson hjá Füch...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 21:17

Snorri Steinn fékk rautt fyrir að tefja en AG vann

AG Kaupmannahöfn vann dramatískan eins marks sigur á Sönderjyske, 29-28, í dönsku úrvalsde...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 20:55

Tuttugu sigrar í röð hjá Kiel - Rhein-Neckar-Löwen vann líka

Tveir Íslendingaslagir til viðbótar leiks Füchse Berlin og SC Magdeburg fóru fram í þýsku ...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 20:33

Dagur: Romero hjálpaði okkur mikið

Það var létt yfir Degi Sigurðssyni, þjálfara Füchse Berlin, á blaðamannafundi eftir sigur ...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 20:19

Dagur og refirnir frá Berlín gefa ekkert eftir

Vísir fékk stemninguna beint í æð í Max-Schmeling-höllinni í kvöld þar sem að heimamenn í ...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 18:45

Snorri Steinn framlengdi saming sinn við AG

Snorri Steinn Guðjónsson gekk í dag frá nýjum eins árs samningi við danska stórliðið AG Ka...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 16:30

Snorri Steinn og Guðjón Valur spila næstu leiki með skrautlega hárgreiðslu

Ekstra Bladet í Danmörku segir frá því á vefsíðu sinni í dag að íslensku landsliðsmennirni...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 12:51

Bjarni bestur í öðrum hluta N1-deildar karla

Akureyringinn Bjarni Fritzson var valinn besti leikmaður annars hluta N1-deildar karla. Bj...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 10:45

Anton og Hlynur dæma í Meistaradeildinni

Fremsta dómarapar landsins, Anton Gylfi Pálsson og Hlynur Leifsson, fór út til Sviss í dag...  

Meira
Handbolti 15. feb. 2012 06:00

Einar bað Hafstein og Gísla afsökunar

Einar Jónsson, þjálfari Fram, hefur sent frá sér opinberlega afsökunarbeiðni á ummælum sín...  

Meira
Handbolti 14. feb. 2012 13:00

Rut búin að framlengja við Holstebro

Hin 21 árs gamla landsliðskona, Rut Jónsdóttir, er búinn að framlengja samningi sínum við ...  

Meira
Handbolti 13. feb. 2012 22:06

Framarar í bikarúrslitaleikinn í tíunda skipti - myndir

Framarar tryggðu sér sæti í bikarúrslitaleiknum í kvöld með dramatískum eins marks sigri á...  

Meira
Handbolti 13. feb. 2012 21:40

Umfjöllun og viðtöl: HK - Fram 23-24 | Fram í bikarúrslitin

Fram mætir Haukum í úrslitum Eimskipsbikars karla eftir ótrúlegan sigur á HK 24-23 á útive...  

Meira
Handbolti 12. feb. 2012 18:11

Umfjöllun og viðtöl: Haukar - FH 22-14 | Haukar í bikarúrslitin

Haukar eru komnir í úrslit Eimskipsbikarsins í handknattleik eftir sigur á erkifjendunum í...  

Meira
Handbolti 12. feb. 2012 18:21

Enn einn sigurinn hjá Kiel | Aðalsteinn lagði toppliðið

Kiel vann öruggan sigur á Hüttenberg, 31-20, í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Li...  

Meira
Handbolti 12. feb. 2012 17:40

Afar mikilvægur sigur hjá Degi og félögum

Füchse Berlin vann mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeilda...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Sport / Handbolti / Það þarf að fjárfesta í landsliðinu