H&M í viðræðum um að opna tvær búðir á Íslandi

Fréttablaðið Viðskipti innlent 08. febrúar 2011 10:30
Framkvæmdir standa yfir í fyrrverandi húsnæði Sautján á Laugavegi 89. Hugsanlegt er að H&M verði með bækistöðvar þar í framtíðinni.
Framkvæmdir standa yfir í fyrrverandi húsnæði Sautján á Laugavegi 89. Hugsanlegt er að H&M verði með bækistöðvar þar í framtíðinni. Mynd/GVA

„Við horfum til þess með miklum vonaraugum að fá svona öfluga verslun inn í miðborgina. Hún myndi gjörbreyta umhverfinu á efsta hluta Laugavegarins sem er akkúrat það sem á þarf að halda núna," segir miðborgarstjórinn Jakob Frímann Magnússon.

Á næstunni ræðst hvort sænska fatakeðjan H&M opnar útibú hér á landi. Eitt skilyrðanna fyrir því að fyrirtækið komi hingað er að það geti opnað tvær verslanir. Viðræður eru uppi um að önnur verslunin verði þar sem Sautján var til húsa á Laugavegi 89. Hin yrði hugsanlega í Smáralind. Ásgeir Bolli Kristinsson í Sautján vildi ekki tjá sig um málið að svo stöddu.

„Ég er búinn að verja töluverðum tíma sem framkvæmdastjóri miðborgarinnar okkar í að útvega Hennes & Mauritz upplýsingar um hverfið sem þeir eru að horfa til, efsta hluta Laugavegarins, bílastæða, fjölda verslana í kring og hverslags verslanir það eru. Þeir eru að skoða þetta mál í fullri alvöru," segir Jakob Frímann og bætir við að H&M hafi einnig skoðað bæði Kringluna og Smáralind, eins og Fréttablaðið hefur áður greint frá. Meiri líkur eru taldar á því að verslunin fái inni í Smáralind eins og staðan er í dag.





Fatakeðjan er í viðræðum um að opna tvær verslanir hér á landi.
Fatakeðjan er í viðræðum um að opna tvær verslanir hér á landi.

Í síðasta mánuði ræddi Fréttablaðið við Håkan Andersson hjá fjölmiðladeild H&M og hann sagði ekkert í plönunum um að opna hér verslun. Sagði hann að það væri einungis orðrómur og ekkert væri staðfest. „Það er auðvitað ekkert óeðlilegt við að einhver upplýsingafulltrúi viti ekki af öllum þeim þreifingum og samningaviðræðum sem eru búnar að vera í gangi," segir Jakob.

Spurður um líkurnar á því að H&M komi til Íslands segir hann: „Það er erfitt að meta það en ég held að það geti brugðið til beggja vona. En ég er að eðlisfari bjartsýnn maður. Ég held að Íslendingar hljóti að eiga heimsmet miðað við höfðatölu í kaupum á varningi frá Hennes & Mauritz, þannig að þessi 330 þúsund manna þjóð hagar sér að sumu leyti eins og þriggja milljóna þjóð þrátt fyrir hrun." Jakob segir stutt í að Svíarnir taki ákvörðun og krossleggur fingur rétt eins fjöldi annarra Íslendinga. „Þangað til skulum við senda þeim okkar sterkustu strauma og vinarþel hinnar gestrisnu þjóðar."

freyr@frettabladid.is




Fleiri fréttir - Viðskipti innlent

Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:57

Hagnaður Arion nam 4,5 milljörðum

Hagnaður Arion banka á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 4,5 milljörðum króna eftir skatta en...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 09:36

Hætta mögulega Tchenguiz-rannsókn

Hugsanlegt er að rannsókn efnahagsbrotadeildar bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, ...  

Meira
Viðskipti innlent 23. maí. 2012 08:00

Ákærður fyrir innherjasvik hjá Glitni

Sérstakur saksóknari hefur ákært Friðfinn Ragnar Sigurðsson, fyrrverandi framkvæmdastjóra ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 21:57

Reginn hf. hagnaðist um 138 milljónir á fyrsta ársfjórðungi

Rekstrartekjur Regins hf. dótturfélags Landsbankans, á fyrsta ársfjórðungi þessa árs námu ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:45

Vonast til að færeyska olíuævintýrið sé að byrja

Dýrasta og viðamesta olíuborun til þessa á landgrunni Færeyja er fyrirhuguð í sumar. Hún g...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 17:23

Gengi Össurar hækkaði skarplega

Gengi hlutabréfa í Össuri hækkað um tæplega 3 prósent í dag, eftir að tilkynnt var um boð ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 16:09

Bjóðast til að kaupa allt hlutafé í Össuri

William Demant lýsti í dag yfir vilja sínum til þess að kaupa öll hlutabréf í stoðtækjafyr...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 15:15

"Kómískt“ að sjá nefnd snillinga verðleggja fjármuni

Gunnlaugur Jónsson fjárfestir segir nýja nálgun að fjármálakerfum vera lífsnauðsynlega svo...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:32

Kjaradeilu sjómanna vísað til sáttasemjara

Landssamband íslenskra útvegsmanna og Samtök atvinnulífsins vísuðu í dag kjaraviðræðum útv...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 13:20

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu

ASÍ telur ríkið brjóta gegn jafnræðisreglu með innheimtu fjársýsluskatts frá lífeyrissjóðu...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:37

Sigurjón Sighvatsson vill milljarð frá Glitni

Sigurjón Sighvatsson kvikmyndaframleiðandi hefur stefnt þrotabúi Glitnis vegna viðskipta v...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:24

Launavísitalan lækkar um 0,1 prósent

Launavísitala í apríl 2012 er 431,4 stig og lækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðastliðna ...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 10:07

Aflaverðmæti eykst um 28,1 prósent milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,1 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2012...  

Meira
Viðskipti innlent 22. maí. 2012 09:11

Arionbanki hækkar vexti

Arion banki hefur hækkað vexti á óverðtryggðum inn- og útlánum. Vaxtahækkunin kemur í kjöl...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 17:14

Gengi Facebook hrynur

Gengi Facebook hefur hrunið í dag, og nemur lækkunin það sem af er degi tæplega 9 prósentu...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 16:59

Tölvur og linsur á Suðurskautinu

Höfuðstöðvar Nýherja iðuðu af lífi þegar fréttastofa heimsótti þær á dögunum. Þetta er önn...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 15:08

Eignarhaldsfélag Hörpu selur í Marel

Eignarhaldsfélag Hörpu, þar sem Helgi Magnússon, stjórnarformaður Lífeyrissjóðs verzlunarm...  

Meira
Viðskipti innlent 21. maí. 2012 09:15

Vísitala byggingarkostnaðar lækkar lítið eitt

Vísitala byggingarkostnaðar lækkaði um 0,1 prósentustig milli mánaða og er hún nú 114,9 st...  

Meira
Viðskipti innlent 20. maí. 2012 20:15

Rannsóknin á Kaupþingsviðskiptum myndi taka mörg ár

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, eða Serious Fraud Office, varaði bræðurna Robert o...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:27

Mátti greiða 10 milljarða fyrir að láta Kaupþingsmál niður falla

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office, bauðst til þess að láta rann...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 13:00

Mikill áhugi á Facebook

Það var líflegur dagur í Nasdaq-Kauphöllinni í New York í Bandaríkjunum í gær þegar viðski...  

Meira
Viðskipti innlent 19. maí. 2012 10:00

Leiguverð fer enn hækkandi

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,6 prósent á milli apríl og maí. Síða...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 15:11

Ergo lögmenn verða Íslenska lögfræðistofan

Lögmannsstofan Ergo lögmenn, Turninum Smáratorgi, hefur skipt um nafn og heitir nú Íslensk...  

Meira
Viðskipti innlent 18. maí. 2012 10:55

Verðmætið jókst um 7,8 prósent

Verðmæti útflutningsframleiðslu sjávarafurða nam rúmum 256 milljörðum króna á síðasta ári ...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 17:44

Afar óskynsamlegt að ráðast í framkvæmdir meðan ríkissjóður er jafn skuldsettur

Seðlabankinn varar við því að ráðist sé í opinberar framkvæmdir á meðan íslenska ríkið sku...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 13:23

Arnarlax fékk rekstrarleyfi fyrir 200 tonna eldi

Arnarlax fékk í gær rekstrarleyfi frá Fiskistofu fyrir 200 tonna eldi á tveimur stöðum í A...  

Meira
Viðskipti innlent 17. maí. 2012 14:06

Vill halda í krónuna en bylta stefnunni í peningamálum

Frosti Sigurjónsson, rekstarhagfræðingur, segir að það þjóni hagsmunum Íslands best að ver...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Skoðun

Slegist við strámann á Fjöllum

Slegist við strámann á Fjöllum

Hjörleifur Sveinbjörnsson
Merkilegur andskoti hvað við erum léleg að ræða málin. Hér er lenska að virða ekki skoðanir, rökræða ekki...

Skoðun

Kostur á kjarabót

Kostur á kjarabót

Ólafur Þ. Stephensen
Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúðalánasjóðs og ba...

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / H&M í viðræðum um að opna tvær búðir á Íslandi