Innlent

Óvenjuleg slys í Árnessýslu

Lögreglan í Árnessýslu hafði afskipti af tveimur óvenjulegum slysum í gærkvöldi.

Annarsvegar fór gestur í sundlauginni í Hveragerði úr axlarlið og hinsvegar meiddist unglingur á úlnliðnum á handboltaæfingu á Selfossi. Báðir þurftu að leita læknis, en hvorugt tilvikið var alvarlegt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×