Innlent

Löggan keyrir minna

Mynd/GVA
163 ökutækjum lögreglu var ekið um 600 þúsund kílómetrum minna á árinu 2009 en árið áður. Þetta kemur fram í upplýsingum frá starfshópi ríkislögreglustjóra sem hefur eftirlit með tækjum og búnaði lögreglunnar. Í fyrra voru eknir rúmlega 4,5 milljónir kílómetra sem er um 12% minni akstur en á árinu 2008. Þá hefur tjónakostnaður sem fellur á lögregluna lækkað verulega milli ára, eða úr 13 milljónum árið 2008 í 5,4 milljónir á síðasta ári. Undir þennan lið falla öll tjón sem tryggingafélög bæta ekki.

Starfshópurinn telur að skertar fjárheimildir séu megin ástæða þess að ökutækjum lögreglunnar er ekið minna en áður. Lægri tjónakostnað megi hins vegar rekja til aukinnar fræðslu sem forvarnarhópur ríkislögreglustjóra, Ríkiskaup og Tryggingamiðstöðin standa fyrir, virkari kennslu í forgangsakstri og aðhalds sem starfshópurinn sjálfur veitir.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×