Slysavarnafélagið Landsbjörg fékk Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins Jón Hákon Halldórsson skrifar 11. mars 2010 18:07 Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, veitti Samfélagsverðlaunin. Mynd/ GVA.
Slysavarnafélagið Landsbjörg hlaut Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins í ár. Þau voru afhent við hátíðlega athöfn í Þjóðmenningarhúsinu í dag. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti verðlaunin. Þetta er í fimmta sinn sem Fréttablaðið veitir Samfélagsverðlaunin en þau eru veitt í fjórum flokkum auk heiðursverðlauna.Slysavarnafélagið Landsbjörg eru landssamtök björgunarsveita og slysavarnadeilda á Íslandi. Starfsemin miðar að því að koma í veg fyrir slys og bjarga mannslífum og verðmætum. Í þeim tilgangi er öflugur hópur sjálfboðaliða til taks ef út af bregður, á nóttu sem degi, allt árið um kring. Slysavarnafélagið Landsbjörg hlýtur verðlaunin fyrir óeigingjarnt björgunarstarf sem byggir á framlagi sjálfboðaliða og fer fram bæði hér heima og erlendis.Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, afhenti fulltrúum Slysavarnafélagsins Landsbjargar verðlaunin. Ari Edwald, forstjóri 365, afhenti þeim síðan verðlaunafé að upphæð ein milljón króna.Aðrir sem voru útnefndir til Samfélagsverðlaunanna:BergmálHjálparstarf kirkjunnarKvenfélagasamband ÍslandsVímulaus æskaTil Samfélagsverðlaunanna koma til greina félagasamtök sem hafa unnið framúrskarandi mannúðar- eða náttúruverndarstarf; samtök sem hafa með starfi sínu lagt sitt af mörkum til að gera samfélagið betra fyrir okkur öll. HvunndagshetjaHvunndagshetja ársins 2008 er André Bachmann. André er mikill gleðigjafi og hefur gengist fyrir jólaskemmtunum fyrir fatlaða og fær verðlaun fyrir þá þrautseigju að viðhalda verkefninu í hátt á þriðja áratug.Aðrir sem voru tilnefndir í þessum flokki:Embla ÁgústsdóttirJakob Einar JakobssonJóna Berta JónsdóttirLovísa ChristiansenVerðlaunin eru veitt einstaklingi sem hefur sýnt einstaka óeigingirni eða hugrekki annaðhvort við vinnu að ákveðnum málaflokki eða í tengslum við einn atburð. Frá kynslóð til kynslóðarVerðlaun í þessum flokki fær Gauraflokkurinn í Vatnaskógi fyrir frumkvæði og óeigingjarnt starf við að bjóða drengjum með ADHD upp á sumarbúðadvöl.Aðrir tilnefndir í þessum flokki:Hallfríður ÓlafsdóttirLaila Margrét ArnþórsdóttirRauði kross Íslands og ÖldrunarráðTónstofa Valgerðar Í þessum flokki koma allir þeir til greina sem hafa unnið eftirtektarvert starf í þágu menntunar, uppfræðslu eða umönnunar þeirrar kynslóðar sem er að vaxa úr grasi, jafnt einstaklingar sem samtök eða stofnanir. Til atlögu gegn fordómumHugarafl hlýtur verðlaunin í þessum flokki fyrir fyrir að vinna að bótum á geðheilbrigðiskerfinu með fræðslustarfi og notendasýn að leiðarljósi.Aðrir tilnefndir:Adrenalín gegn rasismaKristín Vilhjálmsdóttir/BorgarbókasafnPáll Óskar HjálmtýssonÞórdís Elva ÞorvaldsdóttirVerðlaun í þessum flokki eru veitt einstaklingi eða félagasamtökum sem hafa unnið ötullega að því að eyða fordómum í samfélaginu. HeiðursverðlaunHeiðursverðlaun Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins hlýtur Jón Böðvarsson fyrir að miðla Íslendingasögunum til þúsunda Íslendinga, bæði sem framhaldsskólakennari og síðar á fjölsóttum námskeiðum í Endurmenntun Háskólans. Hæfileiki Jóns til að miðla er einstakur og óhætt er að segja að sagnaheimurinn spretti lifandi fram í meðförum Jóns.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Eldur í Árbænum Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Fleiri fréttir 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Sjá meira