Veiðibannið í endurskoðun

Fréttablaðið Erlent 24. apríl 2010 05:30
Nýjar tillögur um fyrirkomulag hvalveiðibanns verða ræddar á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Marokkó í júní.nordicphotos/AFP
Nýjar tillögur um fyrirkomulag hvalveiðibanns verða ræddar á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í Marokkó í júní.nordicphotos/AFP

Fréttaskýring: Næst friður um hvalveiðar?

Tillaga formanns og varaformanns Alþjóðahvalveiðiráðsins um breytt fyrirkomulag hvalveiðibanns fyrir næstu tíu árin er sett fram í þeirri von að hún nægi til að stilla til friðar innan ráðsins, þannig að bæði hvalveiðiþjóðir og andstæðingar hvalveiða megi vel við una.

Allt hefur verið í uppnámi í ráðinu árum saman og útlit fyrir að Ísland og jafnvel fleiri hvalveiðiþjóðir segi sig úr ráðinu, þannig að það verði í raun nánast valdalaus stofnun.

Tillagan felur það í sér að Ísland fær heimild til að veiða 80 langreyðar og 80 hrefnur á ári næstu tíu árin.

Samkvæmt tillögunni þurfa Japanar að draga verulega úr hvalveiðum sínum, en fá þó heimild til að veiða 400 hrefnur árlega næstu fimm árin, en 200 á ári eftir það. Þeir hafa veitt sjö til átta hundruð hrefnur árlega undanfarin ár.

Í sjálfu sér er þetta ekki svo slæm útkoma fyrir íslenska hvalveiðimenn, því þótt Íslendingar hafi farið fram á að veiða 120 langreyðar og 80 hrefnur á fundi í janúar, þá kom fram á þeim fundi gagntillaga frá Bandaríkjunum, Nýja-Sjálandi, Svíþjóð og fleiri ríkjum um að Íslendingar fengju að veiða 60 langreyðar og 60 hrefnur.

Frá sjónarhóli hvalveiðimanna á Íslandi er þó öllu verri sú hugmynd, sem nefnd er í tillögunni, að ráðið banni öll milliríkjaviðskipti með hvalkjöt. Sú hugmynd er að vísu innan hornklofa, sem þýðir að hún er einungis lögð fram til umræðu án þess vera eiginlegur hluti af tillögu formannanna.
Það að þessi hugmynd sé engu að síður höfð með, bendir þó til þess að verulegur þrýstingur sé á að þetta nái fram að ganga. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins munu Bandaríkin hafa beitt sér mjög fyrir þessu, en í reynd myndi þetta þýða að hvalveiðar á Ísland misstu grundvöll sinn, því án útflutnings eru tekjumöguleikar litlir.

Verði tillagan samþykkt á fundi ráðsins í júní verður alþjóðlega hvalveiðibannið, sem verið hefur við lýði í aldarfjórðung, í reynd numið úr gildi, í það minnsta hvað snertir hvalveiðiríkin Ísland, Noreg og Japan. Allar undanþágur til vísindaveiða eða möguleikar á andmælum verða úr sögunni, en í staðinn mega þau ríki, sem nú þegar veiða hvali, stunda takmarkaðar veiðar í söluskyni.

Andstæðingar hvalveiða hafa gagnrýnt þessar tillögur harðlega. Þeir segja að í reynd sé verið að leyfa veiðar, sem hafi verið ólöglegar.
Jón Bjarnason, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, vill taka sér tíma til að skoða þessar tillögur áður en svar verður gefið um afstöðu Íslands til þeirra.

gudsteinn@frettabladid.is


Fleiri fréttir - Erlent

Erlent 11. feb. 2012 16:47

Fagna byltingarafmæli með því að boða til mótmæla

Ár er liðið frá því Hosni Mubarak, forseti Egyptalands, hrökklaðist frá völdum eftir mótmæ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:08

Blaðamenn breska blaðsins The Sun handteknir

Breska götublaðið The Sun er í uppnámi eftir að lögreglan í Lundúnum handtók fimm blaðamen...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 15:04

Hershöfðingi myrtur í Sýrlandi

Byssumenn skutu og myrtu sýrlenskan hershöfðingja fyrir utan heimili sitt í Damascus, höfu...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 13:36

Játar að hafa rænt barni fyrir 23 árum og alið upp sem sitt eigið

Ann Pettway hefur játað að hafa rænt nítján daga gömlu stúlkubarni af spítala í Harlem ári...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:04

Ætlaði að drepa Obama

Tuttugu og tveggja ára maður frá Úsbekistan hefur játað að hafa skipulagt að drepa Barack ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 10:02

Saudí-Arabar vilja að ályktun gegn Sýrlandi verði samþykkt

Saudí-Arabar reyna nú að fá Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna til að samþykkja ályktun þar...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 06:00

Stanslausar árásir í heila viku

Tvær sprengjur sprungu við herstöð í borginni Aleppo og ollu miklu tjóni. Þar í borg hefur...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 05:00

Lögregla í átökum við mótmælendur

Þótt þjóðstjórnin í Grikklandi hafi samþykkt ný niðurskurðaráform er enn eftir að tryggja ...  

Meira
Erlent 11. feb. 2012 04:00

Lokaður heimur opnast

Rússneskum vísindamönnum hefur tekist að bora leið niður í stórt stöðuvatn sem hefur verið...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 23:45

Áhrifamenn 20. aldar endurskapaðir sem hundar

Ljósmyndabókin "Canine Chronicles“ er hugmyndarík endursögn á nokkrum af helstu atvi...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 23:00

Nýtt tónlistarmyndband Ok Go vekur athygli

Nýtt tónlistarmynd hljómsveitarinnar Ok Go var opinberað á Super Bowl um síðustu helgi. Tó...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:30

"Ég er háð því að borða plast"

Átján ára stúlka í Bandaríkjunum heldur því fram að hún sé háð því að borða plast. Hún seg...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 23:30

Skammarlegar sögur notaðar til að kynnast starfsfélögum

Á meðan flestir segja brandara til að brjóta ísinn á nýjum vinnustað hafa Japanir þróað af...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:15

Faðir skýtur fartölvu dóttur sinnar eftir Facebook skilaboð

Fimmtán ára stúlka í Bandaríkjunum fékk opinbera áminningu frá föður sínum um hversu mikil...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 22:00

Hundur beit þáttastjórnanda í beinni útsendingu

Þáttastjórnandi í Bandaríkjunum var fluttur á sjúkrahús eftir að 40 kílóa hundur beit hana...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 21:30

Tólf ára piltur bjargaði heimili ömmu sinnar

Með því að biðla til ókunnugra um að gefa pening tókst 12 ára gömlum pilti að koma í veg f...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 21:00

Schwarzenegger og Stallone fóru saman í skurðaðgerð

Það er greinilega ekki nóg fyrir að harðhausana að leika í kvikmyndum saman - þeir gangast...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 20:30

Paul McCartney fær stjörnu í Hollywood

Bítillinn Paul McCartney hefur loks fengið stjörnu með nafni sínu á gangstéttina í Hollywo...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 10:15

Stjórnvöld í Aserbaídsjan gagnrýnd fyrir einræði

Mannréttindasamtökin Amnesty International segja andrúmsloft ótta og sjálfsritskoðunar rík...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 09:12

Öflugar sprengingar í næststærstu borg Sýrlands

Öflugar sprengingar skóku borgina Aleppo í Sýrlandi í morgun. Ríkissjónvarpið segir að um ...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:30

Skortur á sólarljósi eykur hættuna á heilablóðfalli

Ný bandarísk rannsókn sýnir að samband er á milli skorts á sólarljósi og hættunnar á því a...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:26

Fundu hugsanlega elsta listaverk heimsins

Hellateikning sem hugsanlega er elsta listaverk heimsins fannst nýlega í þekktum dropastei...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:22

Lögðu hald á 15 tonn af amfetamíni

Herinn í Mexíkó hefur lagt hald á 15 tonn af svokölluðu metamfetamíni en fíkniefnið fannst...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 07:06

Fjármálaráðherrar höfnuðu áætlun Grikkja

Fjármálaráðherrar evrusvæðisins höfnuðu sparnaðar- og niðurskurðaráætlun grískra stjórnval...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 06:51

Fæðingartíðni í Danmörku sú lægsta í aldarfjórðung

Fæðingartíðnin í Danmörku þessa dagana er sú lægsta undanfarin aldarfjórðung. Á móti hefur...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 04:00

Sekur um að misnota vald

Spænski rannsóknardómarinn Baltasar Garzon hefur verið dæmdur fyrir að misnota völd sín....  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 03:13

Umsátur kostar hundruð lífið

Sýrlenskir hermenn skutu sprengjum á borgina Homs í gær, sjötta daginn í röð. Sprengjuárás...  

Meira
Erlent 10. feb. 2012 03:13

Samkomulag á síðustu stundu

Leiðtogar grísku stjórnarflokkanna náðu í gær samkomulagi um sparnaðaraðgerðir eftir að er...  

Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Fréttir / Erlent / Veiðibannið í endurskoðun