Börn sem verða fyrir mismunun

Fréttablaðið Fastir pennar 02. mars 2010 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Tannlæknar og tannréttingasérfræðingar eru ekki hluti af sjúkratryggingakerfinu á sama hátt og aðrir læknar. Þetta veldur ýmsum vanda, meðal annars þeim að tannheilsa fólks, bæði fullorðinna og barna, er að einhverju leyti undir efnahag komin.

Önnur birtingarmynd vandans snýr að börnum sem fæðast með skarð í vör og/eða gómi. Þessi börn, og foreldrar þeirra, standa frammi fyrir fjölmörgum aðgerðum á vör, í munnholi og á tönnum. Fyrstu aðgerðirnar eru gerðar af lýtalæknum inni á sjúkrahúsum og eru því foreldrum að kostnaðarlausu, eins og gildir um læknisaðgerðir yfirleitt.

Annað er uppi á teningnum þegar kemur að þeim aðgerðum sem gerðar eru af tannlæknum og þær aðgerðir eru iðulega umfangsmiklar og geta teygst yfir langan tíma, jafnvel meira en tíu ár. Um þær aðgerðir gilda reglur um endurgreiðslur og skemmst er frá því að segja að þær endurgreiðslur hrökkva skammt, ekki síst þegar um er að ræða alvarleg tilvik af skarði í vör og gómi.

Breytingar þær sem urðu nú um áramót á endurgreiðslum vegna tannréttinga, meðal annars barna með skarð í gómi, breyttu því miður litlu þar um. Þetta er gloppa í kerfinu sem verður að fylla í.
Aðeins fáein börn fæðast með skarð í vör og/eða gómi á ári hverju, eða um tíu að meðaltali. Breyting sem fólgin væri í því að ríkið greiddi að fullu kostnað við viðgerð á gómi og tannréttingar þessara barna vegur því sáralítið í rekstri heilbrigðiskerfisins en skiptir hreinlega sköpum fyrir fjárhag heimila þeirra barna sem svona er ástatt um.

Það er óviðunandi að þessi heimili búi við slíkt misrétti. Nóg er á börnin lagt sem fæðast með svo sýnilegan og erfiðan galla sem svo aftur kallar á langvarandi læknis- og tannlæknismeðferð, þó að fjölskyldur þeirra standi ekki hreinlega frammi fyrir því að ekki sé hægt að ljúka meðferð af efnahagsástæðum.

Íslendingar geta verið stoltir af því að búa við heilbrigðiskerfi sem gefur börnum sem í heiminn koma með fæðingargalla kost á framúrskarandi heilbrigðisþjónustu þar sem metnaður er lagður í að lækna fæðingargalla og sjúkdóma eins og kostur er, foreldrum að kostnaðarlausu. Það er því óskiljanlegt og óásættanlegt með öllu að börn sem fæðast með klofinn góm skuli ekki sitja við sama borð og njóta sömu þjónustu og önnur börn með fæðingargalla.

Fram hefur komið fullur vilji Álfheiðar Ingadóttur heilbrigðisráðherra til að koma til móts við foreldra barna með skarð í vör og gómi. Málið er til skoðunar í heilbrigðisráðuneytinu og binda verður vonir við að sú skoðun leiði til þess að börn með skarð í vör og gómi, og foreldrar þeirra, sitji við sama borð og þau börn sem koma í heiminn með aðra fæðingargalla. Ekki verður unað við aðra niðurstöðu en þá að misréttið verði upprætt að fullu.




Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Samstaða um gamlar hugmyndir

Nýja stjórnmálaaflið Samstaða, undir forystu Lilju Mósesdóttur alþingismanns, gefur sig út...  

Meira
Fastir pennar 09. feb. 2012 06:00

Frá trú til skynsemi

Það er undur stutt síðan málið sýndist afgreitt. Þetta með markaðina og ríkið. Markaðir vi...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 06:00

Sameiginleg skylda

Algjör breyting hefur orðið í forsjármálum barna á 20 árum. Árið 1992 varð fyrst möguleiki...  

Meira
Fastir pennar 08. feb. 2012 14:00

Lífeyrissjóðirnir plataðir

Forsvarsmenn lífeyrissjóða keppast nú um að túlka niðurstöðu nefndar sem gerði úttekt á st...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Um börnin og refsilöggjöfina – dómur Hæstaréttar

Lög eiga að tryggja sanngjarna málsmeðferð, réttlæti í samskiptum fólks og velferð. Börn s...  

Meira
Fastir pennar 07. feb. 2012 06:00

Hinar orkulindirnar

Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 08:00

Tapað af fagmennsku

Ný skýrsla um lífeyrissjóðina hefur leitt í ljós að á tveimur árum kringum bankahrunið tók...  

Meira
Fastir pennar 06. feb. 2012 06:00

Huga þarf að færum leiðum

Skuldavandi heimila á að stórum hluta rót sína í því furðulega kerfi sem landsmenn hafa hé...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Peningar annarra

Skýrsla sjálfstæðrar úttektarnefndar um starfsemi lífeyrissjóðanna inniheldur harða gagnrý...  

Meira
Fastir pennar 04. feb. 2012 06:00

Fóstbræðralag

Kópavogur hefur dregið að sér nokkra athygli vegna viðræðna um myndun nýs meirihluta í bæj...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Viðbúin nýjum hættum

Sprengjan sem sprakk fyrir framan skrifstofur ríkissaksóknara, í næsta nágrenni við Stjórn...  

Meira
Fastir pennar 03. feb. 2012 06:00

Ætlað samþykki

Nokkrir þingmenn vilja breyta lögum á þann hátt að líffæri verði tekin úr látnum mönnum ne...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Tómir kofar

Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið va...  

Meira
Fastir pennar 02. feb. 2012 06:00

Vöggugjöf

Kynjamunur á námsárangri í Reykjavík er fyrst og fremst í íslensku. Munurinn kemur afdrátt...  

Meira
Fastir pennar 01. feb. 2012 06:00

Greiðari leið til lífgjafar eftir andlát

Allmörg nýru úr lifandi gjöfum eru grædd í Íslendinga ár hvert. Vegna þessarar gjafmildi á...  

Meira
Fastir pennar 31. jan. 2012 06:00

Óklárað uppgjör

Þingmenn úr að minnsta kosti þremur flokkum, auk óháðra, munu í vikunni leggja fram á Alþi...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 08:00

Ögmundur og íhaldið

Sagnfræðingar tala um að stéttastjórnmál hafi leyst sjálfstæðisstjórnmál af hólmi árið 191...  

Meira
Fastir pennar 30. jan. 2012 06:00

Kostnaður krónu

Samkeppniseftirlitið birti í síðustu viku skýrslu sína um verðþróun og samkeppni á dagvöru...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Hindranir hugarfarsins

Eins og orðið hefur áþreifanlega vart við á undanförn...  

Meira
Fastir pennar 28. jan. 2012 06:00

Háflug og fullveldi

Þegar Benedikt Sveinsson flutti frumvarp á Alþingi um stofnun háskóla þótti ýmsum nóg um h...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Samkeppnin er allra hagur

Samkeppniseftirlitið kynnti í gær mikla úttekt á verðþróun og samkeppni á dagvörumarkaði. ...  

Meira
Fastir pennar 27. jan. 2012 06:00

Ekki eins og að stela bíl

Ímyndum okkur skóframleiðanda sem rekur nokkrar verslanir í litlu landi. Skóframleiðandinn...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Aukablad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir

Kvöldfréttir

Horfa í Beinni
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hæðin - Efni / Börn sem verða fyrir mismunun