Peningarnir eru ekki til

Fréttablađiđ Fastir pennar 04. október 2010 06:00
Peningarnir eru ekki til
Ólafur Ţ. Stephensen skrifar:

Viðbrögðin við fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar eru að mörgu leyti fyrirsjáanleg. Niðurskurður fjárframlaga snertir marga afmarkaða hagsmuni byggðarlaga, stofnana, atvinnugreina, tekjuhópa o.s.frv. Fulltrúar þessara hópa stíga fram og kvarta undan niðurskurðinum. Fyrir stærsta hagsmunahópinn, almenna skattgreiðendur, talar þó enginn - enda eiga þeir sér engan talsmann og engan umboðsmann.

Þó blasir það við að verði horfið frá umdeildum niðurskurðartillögum, eins og talsmenn sérhagsmunahópanna heimta, þarf annaðhvort að skera niður annars staðar - sem kemur þá við einhverja aðra afmarkaða hagsmuni - eða hækka skattana svo að markmiðin um minni halla á fjárlögunum náist. Eins og Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra bendir á í viðtali við Fréttablaðið í dag, er brýnt að þau markmið náist til þess að hægt sé að ná tökum á skuldum ríkissjóðs (skattgreiðenda) og byrja að greiða þær niður.

Ríkisstjórnin hefur nú þegar gengið út á yztu nöf í skattahækkunum. Þær sem komnar eru til framkvæmda hafa þegar haft þau áhrif að hrekja fólk og fyrirtæki úr landi. Verði gengið lengra en þegar er gert í fjárlagafrumvarpinu er raunveruleg hætta á að það hamli þeirri endurreisn atvinnulífsins, sem er svo bráðnauðsynleg, meðal annars til að skapa ríkissjóði tekjur til lengri tíma.

Niðurskurður hjá sjúkrastofnunum, í bótakerfinu og hjá menntastofnunum er að sjálfsögðu gríðarlega sársaukafullur. En þessir málaflokkar, heilbrigðismál, velferðarbætur og menntamál, taka til sín mikinn meirihluta ríkisútgjaldanna. Það er engin leið að ná árangri í ríkisfjármálunum án þess að draga saman útgjöldin til þessara málaflokka. Peningarnir eru ekki til.

Það er orðin útjöskuð klisja að leggja til að skorið verði niður í utanríkisþjónustunni eða kaupum á ráðherrabílum í stað þess að skera niður í velferðarþjónustunni. Þótt utanríkisþjónustan yrði lögð niður (sem er óraunhæft) og ráðherrar færu til vinnu í strætó (sem er ekki fráleit hugmynd) myndi það ekki leysa nema pínulítið brot af þeim vanda, sem við er að glíma í ríkisfjármálunum.

Gagnrýnin á forsendur fjárlaga, að þær séu of bjartsýnar, er réttmæt. Því miður þýðir það enn meiri niðurskurð, reynist gagnrýnin á rökum reist og hagvöxturinn verði minni en gengið er út frá. Í hagvaxtarspánni, sem stuðzt er við, er meðal annars gert ráð fyrir að framkvæmdir við álver í Helguvík hefjist.

Sjálfsagt er það samvizkuspurning fyrir suma ráðherra ríkisstjórnarinnar og stuðningsmenn þeirra, hvort þeir eigi að greiða fyrir álversframkvæmdum svo hægt sé að koma í veg fyrir enn frekari niðurskurð á þjónustu velferðarkerfisins.



Athugiđ. Allar athugasemdir eru á ábyrgđ ţeirra er ţćr rita. Vísir hvetur lesendur til ađ halda sig viđ málefnalega umrćđu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til ađ fjarlćgja ćrumeiđandi eđa ósćmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getađ fariđ inn á vefsíđur Íbúđa...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvćđaveiđigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síđustu viku međ talsverđum lúđrablćstri svokallađa fjárfestingaáćt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferđarráđherra og sérgreinalćknar?

Í umrćđunni undanfariđ hefur veriđ tíđrćtt um gjöld vegna komu til sérfrćđilćkna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftiđ mýta?

Sćl, Sigga Dögg. Ég las greinina ţína um mýtuna um ţröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óţarfi

Listahátíđin í Reykjavík var alltaf stórviđburđur í lífi föđur míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeiđ ţar sem atvinnuleysi var nánast óţekkt á Íslandi skall ţađ á af ţunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Gođsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannađ hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir ţeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var ađ siđfrćđi margra ţeirra sem áttu og stjórnuđu gömlu bönkunum fyrir hrun hefđi r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suđurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir ađ hann klárađi kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi ađ lögum um fjölmiđla sem nú liggur fyrir ţinginu er lagt til ađ útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samiđ um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í ţví fólst međal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn viđ upplýsingar

Ţórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi ţingmađur Samfylkingarinnar, skrifađi grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandrćđum međ nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótiđ lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeiđ sett mikinn ţrýsting á lífeyrissjóđi landsins um ađ...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Ţađ eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigđra ţegar valdamesti mađur heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvađ Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsćtisráđherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Ţađ gefur á bátinn …

Ţađ eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virđingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóđandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúđ fyrr á ţessu ári. Samhliđa ţví fórum viđ yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eđa gćđi

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Ţar ađ auki er alltof stórum hluta ţeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málţófiđ

Í tímaţröng eru mál ţćfđ í öllum ţjóđţingum. Tímaţröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Óţolandi ógagnsći

Seđlabanki Íslands kynnti á miđvikudag niđurstöđu ţriggja gjaldeyrisútbođa sem fariđ hafa ...  

Meira
Fastir pennar 11. maí. 2012 06:00

Ónćg rök fyrir hjálmaskyldu

Kćri lesandi, settir ţú á ţig hjálm í morgun? Nei, ég er ekki sérstaklega ađ tala viđ ţig ...  

Meira
Fastir pennar 10. maí. 2012 06:00

Vondar fyrirmyndir á Alţingi

Vanskil ársreikninga til réttra yfirvalda virđast landlćgur vandi á Íslandi. Fréttablađiđ ...  

Meira

Mest lesiđ: Umrćđan

Nýjast á Vísi

Fréttablađiđ

  • Forsíđa Fréttablađsins
  • Markadurinn
  • Aukablad
  • Allt

Stöđ2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veđurfréttir
Ţú ert hér: Forsíđa / Umrćđan / Fastir pennar / Peningarnir eru ekki til