Viðskipti erlent

Svissnesk yfirvöld vilja forðast íslensk örlög

Eignir UBS og Credit Suisse nema 900 milljörðum dollara hjá hvorum um sig en upphæðin er tvöföld landsframleiðsla landsins.
Eignir UBS og Credit Suisse nema 900 milljörðum dollara hjá hvorum um sig en upphæðin er tvöföld landsframleiðsla landsins.

Sviss á eitt sameiginlegt með Íslandi fyrir hrun, bankakerfi sem er margföld landsframleiðsla landsins að stærð. Þetta veldur svissneskum yfirvöldum áhyggjum og leita þau nú leið til að brjóta upp stærstu banka landsins til að forðast íslensk örlög í framtíðinni.

Í ítarlegri umfjöllun um málið á Bloomberg fréttaveitunni segir að svissnesk yfirvöld séu komin lengra áleiðis en kollegar þeirra í öðrum Evrópulöndum og Bandaríkjunum í smíði löggjafar sem tekur á því vandamáli að stærstu bankar landsins eru orðnir of stóri til að mega falla.

Löggjöfin sem er til umræðu í Sviss þessa dagana gengur út á að tryggja að tveir stærstu bankar landsins, UBS AG og Credit Suisse dragi úr áhættu sinni og safni lausafé.

„Sviss hefur alvarlegasta "of stórir til að falla" vandamálið næst á eftir Íslandi," segir Urs Birchler prófessor við Svissnesku Bankastofnunina við háskólann í Zurich og fyrrum ráðgjafi hjá Seðlabanka Sviss. „Þessi vandi gæti keyrt Sviss af sporinu efnahagsleg og lýðræðislega."

Eignir UBS og Credit Suisse nema 900 milljörðum dollara hjá hvorum um sig en upphæðin er tvöföld landsframleiðsla landsins. Svissnesk stjórnvöld gera nú kröfu til beggja þessara banka að þeir hafi tilbúnar áætlanir um að skipta sér upp í smærri einingar fari svo að landinu verði ógnað af því sem gerðist á Íslandi haustið 2008.









Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×