ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 00:49

Gífurleg eyðilegging í Oklahoma

FRÉTTIR

Svandís Svavarsdóttir: Á ári líffræðilegrar fjölbreytni

Fréttablaðið Skoðun 23. apríl 2010 06:00
Svandís Svavarsdóttir.
Svandís Svavarsdóttir.

Baráttan fyrir líffræðilegri fjölbreytni er barátta fyrir vexti og viðgangi dýra- og plöntutegunda og búsvæða þeirra. Líffræðilegum fjölbreytileika jarðar er nú meðal annars ógnað af fjölgun mannkyns, stækkandi borgum, stórauknum landbúnaði og aukinni sókn í auðlindir lands og sjávar.

Hér á landi stöndum við frammi fyrir margvíslegum verkefnum til að vernda líffræðilegan fjölbreytileika. Lúpína og skógarkerfill eru ágengar tegundir og erfitt getur reynst að hemja útbreiðslu þeirra. Í Hrísey hafa lúpína og skógarkerfill til að mynda orðið ríkjandi á þeim hluta eyjunnar sem er á náttúruminjaskrá vegna fjölskrúðugs gróðurs og fuglalífs. Þannig geta þessar plöntutegundir ógnað líffræðilegri fjölbreytni hér á landi. Við því hefur nú verið brugðist með því að hefja undirbúning að upprætingu lúpínu og skógarkerfils á hálendinu, í þjóðgörðum og á öðrum friðlýstum svæðum og auk þess verður dreifingu lúpínu hætt nema á skilgreindum landgræðslu- og ræktunarsvæðum. Einnig hefur verið ákveðið að tilnefna í ár, á ári líffræðilegrar fjölbreytni, fleiri votlendissvæði á skrá Ramsar-sáttmálans um verndun votlendis. Þá hefur á undanförnum vikum og mánuðum verið lögð mikil áhersla á það í umhverfisráðuneytinu að ljúka gerð reglugerðar um takmörkun á losun kjölfestuvatns. Markmið reglugerðarinnar er að koma í veg fyrir að framandi lífverur berist með kjölfestuvatni skipa til hafsvæða og stranda umhverfis Íslands.

Ágengar framandi lífverur ógna ekki aðeins jafnvægi í náttúrunni heldur geta þær líka valdið fjárhagslegu tjóni. Áætlað er að það kosti ríki Evrópusambandsins um 14 milljarða evra á ári að berjast við illgresi og dýraplágur og í Bandaríkjunum er talið að tjón vegna sebraskeljar nemi um fimm milljörðum dala árlega. Hér á landi hefur þurft að hefja kostnaðarfrekar aðgerðir til að halda aftur af lúpínu, t.d. í Skaftafelli. Minkurinn slapp á sínum tíma út í íslenska náttúru og hefur valdið svo miklu tjóni að nú er í gangi mjög kostnaðarsamt þriggja ára átak til að reyna að fækka honum. Beinn kostnaður af völdum ágengra innfluttra tegunda er því mjög mikill.

Sunnudagurinn 25. apríl er dagur umhverfisins og í ár er hann tileinkaður líffræðilegri fjölbreytni. Af því tilefni verður efnt til fjölda viðburða og er áhugasömum bent á að nálgast upplýsingar um daginn á slóðinni www.umhverfisraduneyti.is/dagurumhverfisins.


Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Skoðun 18. maí 2013 16:00

Ísland með fyrstu einkunn, -að utan!

Í vikunni bárust a.m.k tvær jákvæðar fréttir sem tengjast áherslum Íslands í velferðarmálum. Báðar fréttirnar sýna að viðbrögð okkar við hruninu hafi verið félagslega meðvituð og árangursrík á sviði v... Meira
Skoðun 18. maí 2013 15:45

Sjúkratryggingar Íslands og ósannindin

Framganga SÍ og velferðarráðuneytisins vegna nýrrar lagasetningar og reglugerðar um greiðsluþátttöku SÍ á lyfjum hefur verið ótrúleg, svo ekki sé meira sagt. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Endurmetum ástandið

Ég hef oft verið spurð að því hvort Suðurnesjamenn séu ólíkir öðrum íbúum landsins. Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Aðkoma hótels við Fógetagarð?

Um þessar mundir er í kynningu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Landsímareit í Kvosinni í Reykjavík. Samkvæmt henni má reisa hús í Kirkjustræti, á bílastæðinu andspænis hinum gömlu húsum Alþingis Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Ákall frá krabbameinssjúklingum

Á hverju ári hverfa læknar til útlanda að loknu læknanámi. Þar leggja þeir stund á framhaldsnám og flestir ílengjast áfram erlendis.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 12:00

Vorpróf nemenda

Það er komið að lokapunktinum hjá nemendum mínum á þessari önn: lokapróf. Ég stend og horfi yfir hópinn á þessa einstaklinga sem ég hef fengið að kynnast eina önn.... Meira
Skoðun 17. maí 2013 11:30

Um Stephen Hawking og öryggi Ísraels

Í síðustu viku átti sá fréttnæmi atburður sér stað að einn frægasti og merkasti stjarneðlisfræðingur nútímans, Stephen Hawking, tók þá pólitísku ákvörðun að sniðganga ráðstefnuna ”The Israeli Pr... Meira
Skoðun 17. maí 2013 06:00

Grindavíkurbær sinnir náttúruvernd betur

Undanfarið hefur verið nokkur umfjöllun um náttúruvernd á Reykjanesskaga og er það mjög ánægjulegt. Grindavíkurbær er landmesta sveitarfélagið á Reykjanesi og eru margar af perlum svæðisins innan skip... Meira
Skoðun 16. maí 2013 11:00

Hið meinta matvælaöryggi

Því hefur verið haldið á lofti á undanförnum árum, undir forystu forsetans, að við yrðum að tryggja matvælaöryggi. Og með hverju? Meira
Skoðun 16. maí 2013 11:00

Hernaðurinn gegn undrum Mývatnssveitar

Árið 1992 undirrituðu Íslendingar Ríó-sáttmálann um að sjálfbær þróun yrði höfð í hávegum, rányrkja lögð af og náttúran látin njóta vafans. Undirritun okkar hefur reynst marklaus og ekki pappírsins vi... Meira
Skoðun 16. maí 2013 10:00

Staðlað svar: "The computer says no“

Talið er að tólf hundruð íslenskar konur beri með sér BRCA 2 genastökkbreytingu eins og Angelina Jolie. Hún komst í heimsfréttirnar í fyrradag þegar hún sagði frá því að hún hefði látið fjarlægja bæði... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Vefjagigt í 20 ár – vitundarvakningar þörf

Vefjagigt (e. fibromyalgia syndrome) er langvinnur fjölkerfasjúkdómur sem einkennist af útbreiddum stoðkerfisverkjum, þreytu og svefntruflunum. Að auki eru þeir sem þjást af vefjagigt oft með ýmis sta... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Að gefnu tilefni

Á síðustu dögum hafa birst í fjölmiðlum greinar frá foreldrum þroskahamlaðra barna varðandi inntökureglur í Klettaskóla, fyrrum Öskjuhlíðarskóla. Í þessum greinum hafa ýmsar fullyrðingar verið settar ... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Að fara vel með fé ríkisins

Það er gott þegar borgarar þessa lands hafa áhyggjur af því hvernig skattfé er varið. Vegagerðin sinnir hlutverki sínu með hagkvæmni að leiðarljósi og reynir eftir fremsta megni að nýta það fé sem er ... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Kæfum ekki hjarta miðbæjarins

Nú er í kynningu nýtt deiliskipulag á dýrmætum reit í hjarta borgarinnar, Landsímareitnum í Kvosinni. Ég skora á fólk að kynna sér það vel og senda inn athugasemdir á skipulag@reykjavik.is fyrir 23.ma... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Skólaheilsugæslan: Réttir aðilar á réttum stað

Allar ákvarðanir eða ráðstafanir yfirvalda er varða börn skulu byggðar á því sem er börnum fyrir bestu (úr 3. grein Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna). Ég á mér draum. Draum um samfélag sem býður öllum... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Borgarstjórn hrósað

Þórey Vilhjálmsdóttir, framkvæmdastjóri borgarstjórnarflokks Sjálfstæðisflokksins, skrifar drengilega grein í Fréttablaðið þar sem hún rekur jákvæðar einkunnir sem borgarstjórn fær í nýrri úttektarský... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Margt er skrítið í kýrhausnum

Þegar ég hugsa um íslensk stjórnmál verður mér oft hugsað til þessa málsháttar. Nú eru kosningar nýafstaðnar og tveir flokkar fengu samtals meirihluta þingmanna. Það er eðlilegt að þessir flokkar hugs... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Sjálfbær umbreyting til aukinna atvinnutækifæra

Á tímum óstöðugleika í efnahagsmálum verða Norðurlandaríkin að fjárfesta til framtíðar. Þetta er skoðun norræna verkalýðssambandsins (NFS). Samstarfshefð norrænu ríkjanna er traust og nýtur alþjóðlegr... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Um bolta og bækur

Kolbrún Bergþórsdóttir vakti heldur betur upp umræðu á kaffistofum margra landsmanna þegar hún gagnrýndi einlæga aðdáendur Alex Fergusson í grein sinni "Gamall maður hættir í vinnu“ sem birtist ... Meira
Skoðun 16. maí 2013 07:00

Kjarasamningar – ný þjóðarsátt

Fram undan eru tímar þar sem leysa þarf úr mikilvægum málum á hinum pólitíska vettvangi og afar brýnt er að það verði gert með þeim hætti að þjóðin fái ekki annan skell í ætt við þann sem hún fékk í o... Meira
Skoðun 15. maí 2013 12:00

29 prósent í eigu kvenna

Erlendar rannsóknir hafa sýnt að konur hafi síður áhuga á fjárfestingum en karlar og eru þar ýmsar ástæður nefndar. Meira
Skoðun 15. maí 2013 09:00

Heilsa fyrirtækja

Ímyndaðu þér að fyrirtæki eða opinber stofnun sé manneskja úr holdi og blóði. Manneskja sem hefur sinn eigin karakter og hefur mótað lífsskoðanir sínar og viðhorf út frá reynslu og uppeldi. Meira
Skoðun 15. maí 2013 06:00

Ákall til innanríkisráðherra

Í liðinni viku vakti mál samkynhneigðs hælisleitanda frá Nígeríu athygli og hneykslan margra, en umsókn hans um hæli hér á landi hefur verði synjað án þess að hafa verið tekin til efnislegrar meðferða... Meira
Skoðun 15. maí 2013 06:00

Hindrum ranglæti

Þann 6. maí sl. voru birtar fréttir af máli hælisleitanda frá Nígeríu, Martin. Hann flúði Nígeríu vegna þess að hann er samkynhneigður. Martin hafði sótt um hæli á Ítalíu og eytt níu árum í óvissu áðu... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Skoðun / Svandís Svavarsdóttir: Á ári líffræðilegrar fjölbreytni
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000