Ófriðarseggir öngruðu Steinunni Valdísi í annað sinn Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. apríl 2010 21:22 Lögreglan ræddi við fólkið fyrir framan hús Steinunnar Valdísar. Mynd/ Baldur Hrafnkell.
Nokkrir ófriðarseggir komu saman fyrir framan heimili Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, þingmanns Samfylkingarinnar, undir kvöld. Steinunn Valdís segir að um sé að ræða sama fólk og kom í gærkvöld en þá bauð hún þeim að hitta sig á skrifstofu sinni til að ræða málin. „Ég fór út aftur núna og þá afhentu þau mér bloggfærslur af DV.is og ég ítrekaði boðið frá því í gær og þau þurftu þá bara að nefna stað og stund," segir Steinunn Valdís. Hún segir að fólkið hafi neitað og sagt að það vildi ekki fund. „Ég var ekki í neinum viðræðum við þau en þetta voru skilaboðin," segir Steinunn Valdís. Steinunn Valdís segir að sér finnist eðlilegt að hún fái tækifæri til að útskýra þetta og fara yfir þetta en sér sýnist að menn hafi ekki áhuga á upplýstri umræðu um þessi mál. Hún segist ekki geta svarað því hvers vegna fólkið ákveði að mótmæla fyrir framan heimili hennar. „Þú verður að spyrja þau að því. Ég veit það ekki," segir Steinunn Valdís. Eftir því sem fréttastofa Stöðvar 2 og Vísis kemst næst er að mestu leyti um að ræða sama fólkið og kom saman fyrir utan hjá Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, fyrrverandi varaformanns Sjálfstæðisflokksins, í síðustu viku. Fólkið er núna farið frá heimili Steinunnar Valdísar.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Hafi selt alls konar fíkniefni í gegnum „Kannabis Inc“ Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira