Innlent

Flugvélin er bylting í gosrannsóknum

Fornar sagnir kveða á um að eldfjöll séu fordyri helvítis. Nýjasta tækni til myndatöku við erfið skilyrði virðist hafa sannað að svo sé. Myndin er tekin af jöklinum úr 2,5 kílómetra hæð.
mynd/landhelgisgæslan
Fornar sagnir kveða á um að eldfjöll séu fordyri helvítis. Nýjasta tækni til myndatöku við erfið skilyrði virðist hafa sannað að svo sé. Myndin er tekin af jöklinum úr 2,5 kílómetra hæð. mynd/landhelgisgæslan
Ný eftirlits- og björgunarflugvél Landhelgisgæslunnar hefur leikið aðalhlutverk við gagnaöflun við gosstöðvarnar á Suðurlandi. Upplýsingarnar hafa gagnast við hættumat og veitt jarðvísindamönnum ómetanleg tækifæri til rannsókna.

TF-SIF, ný flugvél Landhelgisgæslunnar, kom til landsins í fyrrasumar en hefur þegar sannað gildi sitt. Þetta á ekki síst við um mikilvægi hennar til rannsókna á eldstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli undanfarna daga og vikur. Er það mat vísindamanna að kynstrin öll af upplýsingum, sem nú hefur verið aflað, lægju ekki fyrir ef vélin hefði ekki verið keypt. Vegna óhagstæðra veðurskilyrða frá gosbyrjun hefði upplýsingaöflun án vélarinnar verið erfið eða ómöguleg og snertir því einnig almannaöryggi.

Víðir Reynisson, deildarstjóri almannavarna ríkislögreglustjóra, segir tilkomu flugvélarinnar byltingu. „Það verður að segjast eins og er að ef við hefðum ekki haft vélina þá værum við að meta þetta í blindni. Þarna hefur verið lítið eða ekkert skyggni en radarinn hefur gefið okkur góða mynd af yfirborði jökulsins. Bæði höfum við séð hvernig sprungan liggur, hvar sigkatlar hafa myndast og hvar gosið nær í gegn. Síðan höfum við séð hvernig vatnið flýtur að hluta á yfirborði jökulsins."

Víðir segir að allir sem koma að öryggismálum hér á landi hafi vonast til að búnaður vélarinnar gæfi aukna möguleika. „En reynslan nú þegar hefur farið fram úr öllum okkar villtustu draumum."

„Við erum að skrásetja ógrynni upplýsinga á hverjum degi sem annars hefðu einfaldlega ekki legið fyrir," segir Ármann Höskuldsson, eldfjallafræðingur á Jarðvísindastofnun. „Í raun gefur þessi tækni okkur alveg nýja sýn á eldgos hér á landi."

Ármann útskýrir að með radartækni um borð í vélinni sjáist í gegnum gosmökkinn og því hafi verið hægt að skrásetja og mynda þróunina á gosopinu. „Við sáum til dæmis á miðvikudaginn hvernig gatið opnaðist og stækkaði svo jafnt og þétt. Þetta er galdur."

Ármann telur að upplýsingarnar sem aflað hefur verið til þessa muni hafa mikið vægi í framtíðarrannsóknum á eldstöðinni í Eyjafjallajökli. Þess utan sé hægt að vinna nýtt áhættumat af mun meiri nákvæmni en annars hefði verið. „Það er einfaldlega stórkostlegt að hafa aðgang að þessari vél sem er að mínu mati þegar orðin ómissandi."svavar@frettabladid.is



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×