Innlent

Grímsvötn í startholunum

Gos í Grímsvötnum  Síðast gaus árið 2004 og sömu aðstæður hafa skapast í eldstöðinni nú og þá var. Fréttablaðið/Vilhelm
Gos í Grímsvötnum Síðast gaus árið 2004 og sömu aðstæður hafa skapast í eldstöðinni nú og þá var. Fréttablaðið/Vilhelm

Þegar eldgosið í Eyjafjallajökli hófst í fyrradag gerðu aðrar eldstöðvar vart við sig.

„Myndarlegur jarðskjálfti varð í Grímsvötnum og sömuleiðis byrjuðu smáskjálftar í Upptyppingum,“ segir Páll Einarsson, prófessor í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Páll segir þetta mjög athyglisvert, ýmis teikn séu á lofti um að önnur eldgos séu væntanleg á næstu mánuðum eða árum.

Grímsvötn í Vatnajökli séu til dæmis komin í sömu stöðu og þau voru í árið 2004 þegar síðast gaus þar. Þar sé bæði há vatnsstaða og þrýstingur í kvikuhólfinu rétt eins og þá var. Þá varð hlaup sem hleypti af stað gosi og má búast við því að sama gerist nú. „Okkur hefur gengið vel að spá fyrir um gos í Grímsvötnum og þar má búast við gosi á næstu tveimur árum,“ segir Páll og bætir við að auðvitað geti verið að það gjósi fyrr, jafnvel á næstu vikum eða mánuðum.

Í Upptyppingum, austan við Öskju, eru jarðhræringar og kvikuvirkni í gangi. Jarðfræðingar komust að því á árunum 2007 til 2008 að þar væri kvikuinnskot í neðri hluta jarðskorpu. Svæðið hefur að sögn Páls „minnt á sig öðru hverju síðan þá“ og síðast í fyrradag. Páll segir að þarna gæti eitthvað farið að gerast.

Svo má ekki gleyma Heklu, segir Páll sem minnir á að þessi virkasta eldstöð Íslands hafi gosið á tíu ára fresti um það bil. Hún gaus 1970, 1980, 1991 og 2000.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×